Björk

Björk - Tónleikar
Laugardalshöll, annan í páskum, ásamt hljómsveit
Hot Chip leikur einnig á tónleikunum.
Björk heldur sína fyrstu tónleika hér á Íslandi í sex ár mánudaginn 9. apríl í Laugardalshöll. Þetta verða fyrstu tónleikarnir í heimstónleikaferð Bjarkar til kynningar á nýrri breiðskífu, Volta, sem kemur út um heim allan þann 7. maí. Þetta verður í fyrsta sinn sem ný lög af þessari plötu munu hljóma, en á prógramminu eru líka eldri lög af fyrri plötum Bjarkar.
Með Björk í Laugardalshöll leika Mark Bell og Damian Taylor sem sjá um raftæki hverskonar, Chris Corsano, ungur og efnilegur trommuleikari, Jónas Sen spilar á orgel og hljómborð. Fyrir tónleikana í Höllinni og heimstónleikaferðina sem fylgir í kjölfarið hefur Björk sett saman 10 kvenna blásturleikararhóp, sem má telja harla óvenjulegt, en hann skipa: Brynja Guðmundsdóttir, Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir, Harpa Jóhannsdóttir, Erla Axelsdóttir, Særún Ósk Pálmadóttir, Bergrún Snæbjörnsdóttir, Valdis Þorkelsdóttir, Sylvia Hlynsdóttir, Björk Nielsdóttir og Sigrún Jónsdóttir.
Húsið opnar kl. 18.30
Björk á svið kl. 20.00
Hot Chip á svið eftir Björk
ATH 18 ára aldurstakmark nema í fylgd með fullorðnum.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 09.04.07 - Mánudagur | 20:00 | Björk - Standing | Laugardalshöll - Stæði | Mr. Destiny | 3.900 kr. |
| 09.04.07 - Mánudagur | 20:00 | Björk - Seating | Laugardalshöll - Stúka | Mr. Destiny | 6.900 kr. |


