- Þú ert hér »
Made In Iceland

Made in Iceland, 31.maí 2007
Á “Made in Iceland” verður tísku og tónlist slegið saman í stórt “high profile event”. Ein stór tískuhátíð sem sýnir upprennandi hönnuði, fyrirsætur og listamenn. Markmiðið er að sýna “grasrótina” í íslenskri tísku.
Hönnuðirnir sem sýna eru:
Forynja, Starkiller, Aftur, Ostwald, Raxel, Eygló
Tónlistaratriði verða stór partur af kvöldinu en Steed Lord mun spila ásamt Somtime.
Sextán nýjar fyrirsætur frá Eskimo verða kynntar til leiks. Þær munu sýna fatnað frá tískuhönnuðum sex. Teknar verða portrait ljósmyndir ef hverri og einni sem hengdar verða víðsvegar um salinn.
Make up: Sóley Ástudóttir og EMM school of make up.
Listrænn stjórnandi hárs: Jón Atli hjá Gel
Meðal gesta verða umboðsmenn frá helstu fyrirsætu umboðsskrifstofum í heiminum, ásamt blaðamönnum á borð við ID og Dazed.
Stefnt verður að því að fá Celebrities til að koma og kynna eða vera sem heiðurgestir/verndarar sýningarinnar.
Umboðsmenn erlendis frá:
NEXT Paris, NEXT Ny, LA Models LA, ICM London, 2 PM Copenhagen, MODELWERK Hamburg, VIEW Spain
Viðburðurinn sem verður árlegur héðan í frá er hugsaður til að vekja athygli á öllu því nýjasta sem lýtur að hönnun og tísku á Íslandi og til að vekja athygli á þeim sem eru að hefja sinn feril.
Húsið opnar 19:30
Ath. Netsölu hefur verið lokað. Hægt er að nálgast miða á afgreiðslustöðum Miði.is
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 31.05.07 - Fimmtudagur | 20:00 | Made In Iceland - Reykjavik Fashion event | Basecamp Verið | Midi.is - Stakir viðburðir | 950 kr. |


