- Þú ert hér »
Chris Cornell

Tengt efni
Nánari upplýsingar á vefnum
Concert er það mikil ánægja og heiður að tilkynna hér með sannkallaða stórtónleika, með hinum eina sanna Chris Cornell, laugardagskvöldið 8. september í Laugardalshöllinni.
Í fyrsta skipti á sviði, flytur Chris Cornell ásamt hljómsveit, alla smellina frá Soundgarden, Temple of the Dog og Audioslave!
Það sem gerir núverandi tónleikaferð Cornell og þar með tónleikana hans 8. sept í Laugardalshöllinni að stórmerkilegum viðburði og ómissandi fyrir alla rokkunnendur er sú staðreynd að í fyrsta skipti á sviði mun Cornell taka alla helstu smelli allra þessara þriggja banda, auk vinsælustu laga sólóferilsins. Gestir mega sem sagt búast við því að á einu kvöldi verði boðið upp á lög á borð við "Black Hole Sun", "Fell on Black Days", "Spoon Man" og "Outshined" með Soundgarden, "Hunger Strike" og "Say Hello 2 Heaven" með Temple of the Dog og "Like a Stone", "Cochise", "Be Yourself", "Original Fire" og "Doesn't Remind" með með Audioslave.
Auk þess má búast við smellum frá sólóferlinum á borð við "You Know My Name" úr nýjustu James Bond myndinni.
ATH: Öll ljósmyndun, allar hljóð- og myndupptökur og allur ljósmynda- og upptökubúnaður stranglega bannaður á tónleikunum.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 08.09.07 - Laugardagur | 21:00 | Chris Cornell - Tónleikar | Laugardalshöll - Stúka | Concert | 8.900 kr. |
| 08.09.07 - Laugardagur | 21:00 | Chris Cornell - Tónleikar | Laugardalshöll - Stæði | Concert | 5.900 kr. |


