Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Kammerhljómsveitin Ísafold er skipuð einvalaliði ungra íslenskra tónlistarmanna sem ýmist starfa eða eru við nám víðs vegar um heim. Hljómsveitin hefur skamma viðdvöl á Íslandi og heldur tvenna tónleika hérlendis nú í ágúst áður tónlistarmennirnir hverfa aftur af landi brott.

Á tónleikunum flytur hljómsveitin valdar tónlistarperlur úr fortíð og nútíð og verða einleikararnir Elfa Rún Kristinsdóttir, fiðluleikari, og Víkingur Heiðar Ólafsson, píanóleikari ásamt tenórsöngvaranum Braga Bergþórssyni þeim til fulltingis.

Efnisskrá:

Arvo Pärt (1935): Fratres (1977)
Benjamin Britten (1913-1976): þjóðlög
Igor Stravinsky (1882-1971): Ragtime (1917-1918)
Camille Saint-Saëns (1835-1921): Romance op. 48 (1874)

- HLÉ -

Ludwig van Beethoven (1770-1827): "Pathétique", píanósónata nr. 8 í c-moll (1797-1798)
Vaughan Williams (1872-1958): úr "On Wenlock Edge" (1908-1909)
Daníel Bjarnason (1979): Öll hljóð bíða þagnar (2007)

Ísafold-kammersveit
Einleikarar: Elfa Rún Kristinsdóttir fiðla, Bragi Bergþórsson tenór, Víkingur Heiðar Ólafsson píanó.
Stjórnandi: Daníel Bjarnason

ATH að ef greitt er með VISA kreditkorti þá fæst 1000 kr afsláttur af miðanum.

Miðasala fer fram í Langholtskirkju frá klukkan 19.30 þann 16. ágúst.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
15.08.07 - Miðvikudagur 20:30 Ísafold í innrás - Tónleikar - Uppselt Langholtskirkja Midi.is - Stakir viðburðir 2.500 kr.
16.08.07 - Fimmtudagur 20:30 Ísafold í innrás - Tónleikar Langholtskirkja Midi.is - Stakir viðburðir 2.500 kr.

© 2010 Miði.is ehf



www.ha.is
Uppfæra Flash