- Þú ert hér »
Rufus Wainwright

Tengt efni
Nánari upplýsingar á vefnum
Hinn magnaði kanadíski listamaður Rufus Wainwright mun koma fram á tónleikum í Háskólabíói þann 13. apríl nk. Það verður að teljast gríðarlegur fengur að þessi mikli listamaður leggi leið sína til Íslands enda eru aðdáendur hans hér á landi fjölmargir.
Allt frá því að Rufus kom fyrst fram aðeins barn að aldri hefur hann vakið verðskuldaði athygli. Hann spilaði í hljómsveit með móður sinni og systur Mörtu Wainwright en hún er auðvitað þekkt söngkona í dag. Rufus var rétt 16 ára þegar hann var tilnefndur til Genie verðlaunanna fyrir lagið I’m A-Runnin, sem kom fram í myndinni Tommy Tricker and the Stamp Traveller. Frá því hefur leið hans legið upp á við og frá fyrstu sólóplötunni Rufus Wainwright sem kom út árið 1998 má segja að aðdáendahópurinn hafi aðeins stækkað. Rolling Stones taldi plötuna vera eina þá bestu það ár tímaritið valdi Rufus sem besta nýja listamanninn það ár.
Rufus hefur einnig tekið lög eftir aðra og gert það einstaklega vel. Meðal laga sem hann hefur tekið er Leonard Cohen lagið Hallelujah sem heyra mátti í Shrek 2 og Bítlalaginu Across the Universe – báðar útgáfur þykja tær snilld.
Hann er einstakur á tónleikum og nær upp mikilli nánd og stemmingu hvar sem hann kemur fram.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 13.04.08 - Sunnudagur | 20:00 | Rufus Wainwright - Tónleikar | Háskólabíó | Austur Þýskaland | 6.300 kr. |

