Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Kammersveitin Ísafold og Íslenska óperan standa fyrir Öðruvísi Vínartónleikum þriðja árið í röð. Að þessu sinni er röðin komin að einu af meistaraverkum 20. aldarinnar, Söngvum jarðar (Das Lied von der Erde) eftir Gustav Mahler (1860-1911). Tónskáldið sjálft taldi verkið sína persónulegustu tónsmíð en náði aldrei að heyra það flutt, þar sem hann lést áður en það var frumflutt. Í raun er um að ræða mikilfenglega söngsinfóníu sem sameinar þær greinar sem tónskáldið hafði mest dálæti á, sönglögum og sinfóníunni. Í verkinu notast hann við gömul kínversk ljóð þar sem fjallað er um hverfulleika mannlegrar tilveru, gleði, sorg og söknuð.

Kammersveitin Ísafold hefur á undanförnum árum skipað sér í fremstu röð í íslensku tónlistarlífi og fær nú til liðs við sig tvær af okkar skærustu söngstjörnum af yngri kynslóðinni. Einsöngvarar eru Finnur Bjarnason, tenór, og Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzósópran, en stjórnandi er Daníel Bjarnason. Óhætt er að lofa einstakri upplifun á þessum glæsilegu og óhefðbundnu vínartónleikum þann 30. desember í Íslensku Óperunni.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
30.12.07 - Sunnudagur 20:00 Öðruvísi Vínartónleikar - Kammersveitin Ísafold Íslenska óperan Íslenska óperan 2.500 kr.

© 2010 Miði.is ehf



www.ha.is
Uppfæra Flash