Hraun

Tónlist Hrauns rokkar frá dýpstu sorgarsöngvum til brjálaðra gleði- og kátínubraga um allt sem manninum kemur við. Þess vegna kalla hljómsveitarmeðlimir tónlist sína Geðsveiflu, en henni mætti einnig lýsa sem þjóðlagakenndu rokki og kántrýskotnu þungarokki með polkaívafi á köflum.
Fyrsta hljómplata sveitarinnar "I can't believe it's not happiness" hlaut góðar viðtökur og fleytti lagið "Ástarsaga úr fjöllunum" af þeirri plötu hljómsveitinni alla leið til London þar sem þeir kepptu til úrslita í hljómsveitakeppni BBC World Service.
Nú fagna Hraunmenn útgáfu annarrar plötu sinnar, "Silent Treatment," en á henni er haldið áfram ferðalaginu frá eymd til endurlausnar.
Meðlimir Hrauns eru:
Svavar Knútur: Söngvari og gítarleikari, Guðmundur Stefán: Gítarleikari, Hjalti Stefán: Mandólín-, flautu-, og slagverksleikari, Loftur Sigurður: Bassaleikari, Gunnar Ben: Hljómborðs- og óbóleikari, Jón Geir: Trommuleikari
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 16.06.08 - Mánudagur | 22:00 | Hraun - Útgáfutónleikar | Rúbín (Öskjuhlíð) | Hraun | 1.500 kr. |


