Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Ath! Aðeins má vera eitt nafn/kennitala á bak við hvern og einn miða. Framvísa þarf skilríkjum ásamt miðanum þegar farið er inn á svæðið.

Roskilde Festival hófst árið 1971 og hefur farið vaxandi með ári hverju. Í dag eru 120.000 manns að meðaltali sem fara á hátíðina, þar á meðal eru ca. 75.000 gestir og 40.000-50.000 starfsmenn, hljómsveitarmeðlimir, gæsla, tæknimenn, kokkar og margir fleiri sem að hátíðinni standa.

Hátíðin er stærsta tónlistarhátíð í N-Evrópu og er sennilega sú frægasta í heimi. Hátíðin er þekkt fyrir að hafa góða tónlistardagskrá á hverju ári, ekki of mikið af risanöfnum heldur einbeita þeir sér sérstaklega að hljómsveitum dagsins í dag og hljómsveitum morgundagsins.

Roskilde Hátíðin 2009 stendur yfir, dagana 2. - 5. júlí 2009. Tjaldsvæðið opnar sunnudaginn 28. júní 2009. Miðinn gildir inná hátíðina frá opnun tjaldsvæðisins.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
02.07.09 - Fimmtudagur 17:00 Roskilde Festival 2009 - 2. - 5. júlí Roskilde Roskilde 47.900 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



World Class
Uppfæra Flash