Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Í tilefni af útgáfu sinnar fyrstu plötu heldur hljómsveitin Menn ársins glæsilega útgáfutónleika í Iðnó, laugardaginn 24. janúar. Fjöldi hljóðfæraleikara, strengjasveit, blásarar og slagverksleikarar munu leika með hljómsveitinni þetta kvöld.

Viðtökur við frumburði Manna ársins hafa verið góðar. Lagið 12 Steps to the Liquor Store sat lengi á vinsældarlista Rásar 2. Menn ársins áttu plötu vikunnar á Rás 2 og fengu lofsamlega dóma frá Andreu Jónsdóttur við það tækifæri auk jákvæðrar gagnrýni í Fréttablaði og Morgunblaði.

Útgáfutónleikarnir hefjast klukkan 21.00 og miðaverð er 1.500 krónur.

Hljómsveitina Menn ársins skipa þeir Haraldur Vignir Sveinbjörnsson, Kjartan Guðnason, Sigurdór Guðmundsson og Sváfnir Sigurðarson.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
24.01.09 - Laugardagur 21:00 Menn Ársins - Útgáfutónleikar Iðnó Iðnó 1.500 kr.

© 2010 Miði.is ehf



www.ha.is
Uppfæra Flash