- Þú ert hér »
Blúshátíð 2009

Tengt efni
Nánari upplýsingar á vefnum
- Myndagallerí (2 myndir)
Blúshátíð í Reykjavík 4. – 9. apríl. 2009
Pinetop Perkins og Vinir Dóra
Willie "Big Eyes" Smith, Deitra Farr, KK, Nordic All Stars Blues Band Mugison, Blúsmenn Andreu, Finnskogen Blues Band og fl
Hátíðin hefst með Blúsdegi – Blús í miðborginni, laugardaginn 4. apríl. Klúbbur Blúshátíðar verður starfræktur frá kl 21.00 á Kaffi Rósenberg alla hátíðardagana. Þrennir stórtónleikar eru á Hilton Reykjavik Nordica, þriðjudags-, miðvikudags- og fimmtudagskvöld.
Stórtónleikar, þriðjudag 7. apríl kl. 20.00 - UPPSELT -
Pinetop Perkins, lifandi goðsögn, og einn af síðustu blúsmönnum fyrstu kynslóðar blúsmanna sem enn lifa – og spilar, kemur fram með Vinum Dóra. Einnig: Deitra Farr, KK, Nordic All Stars Blues Band og Devil’s Train. Pinetop Perkins er enn að túra, búinn að fá Grammy-verðlaun fyrir ævistarfið, og fékk nýlega Grammy-tilnefningu fyrir plötu sem hann gerði í fyrrasumar í tilefni af 95 ára afmæli sínu.
Stórtónleikar, miðvikudag 8. apríl kl. 20.00
Willie “Big Eyes” Smith, önnur lifandi goðsögn. Willie “Big Eyes” spilaði með Muddy Waters, eins og Pinetop, en hefur líka spilað með Buddy Guy, Junior Wells, Rolling Stones, Bob Dylan og Eric Clapton. Blúsmenn Andreu og Mugison koma einnig fram á tónleikunum.
Vegna fjölda áskorana ætlar Pinetop Perkins að spila með Willie Smith í nokkrum lögum í kvöld, miðvikudagskvöld.
Stórtónleikar, fimmtudag 9. apríl, skírdag kl. 20.00
Vinir Dóra, 20 ára afmælisfagnaður. Með vinunum koma fram gamlir “Vinir”. Einnig: Deitra Farr, Ragnheiður Gröndal, Andrea og fleiri. Á tónleikunum kemur einnig fram Finnskogen Blues Band frá Noregi.
Blúsmiðinn
Handhafi Blúsmiðans hefur aðgang að öllum þremur tónleikunum sem haldnir verða á Hilton Reykjavik Nordica. Takmarkað magn Blúsmiða er í boði.
ATH: Netsölu er nú lokið á tónleikana þann 9. apríl, miðasala og afhending er við inngang frá kl 19.00
ATH: Miðasala fer fram við inngang alla daga hátíðarinnar.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 07.04.09 - Þriðjudagur | 19:00 | Blúshátíð 2009 - BLÚSMIÐINN | Hilton Reykjavík Nordica | Blúshátíð í Reykjavík | 7.500 kr. |
| 07.04.09 - Þriðjudagur | 20:00 | Blúshátíð 2009 - Pinetop Perkins - UPPSELT | Hilton Reykjavík Nordica | Blúshátíð í Reykjavík | 3.900 kr. |
| 08.04.09 - Miðvikudagur | 20:00 | Blúshátíð 2009 - Willie “Big Eyes” Smith | Hilton Reykjavík Nordica | Blúshátíð í Reykjavík | 2.900 kr. |
| 09.04.09 - Fimmtudagur | 20:00 | Blúshátíð 2009 - Vinir Dóra 20 ára afmælisfagnaður | Hilton Reykjavík Nordica | Blúshátíð í Reykjavík | 2.900 kr. |


