Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Útgáfutónleikar Ljótu hálfvitanna í Íslensku óperunni

Þann 5. júní n.k. munu Ljótu hálfvitarnir fagna útgáfu þriðju hljómplötu sinnar með tónleikum í Íslensku óperunni. Platan ber, líkt og fyrri plötur þeirra, nafnið Ljótu hálfvitarnir en þó má þekkja hana frá eldri plötum á grænum lit sem er áberandi á umbúðum hennar og svo á því að ekkert af lögunum á henni er á hinum plötunum.

Tónleikarnir hefjast kl. 21 og verður efni af nýju plötunni uppistaðan í efnisskránni. Þó verður lætt inn vinsælum slögurum af eldri plötum eftir því sem ástæða þykir til. Einnig munu hálfvitar kalla til liðs við sig ýmsa af þeim sem lögðu þeim lið við gerð plötunnar og má reikna með að ringulreiðin á sviðinu verði jafnvel enn meiri en venjulega þegar hálfvitar eiga í hlut. Sem er þó talsverð.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
30.05.09 - Laugardagur 21:00 Ljótu hálfvitarnir - Íslenska óperan Íslenska óperan 2.000 kr.
05.06.10 - Laugardagur 21:00 Ljótu hálfvitarnir - Íslenska óperan Íslenska óperan 2.500 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash