- Þú ert hér »
Litli tónsprotinn

Tengt efni
Nánari upplýsingar á vefnum
Litli tónsprotinn er áskrift að góðri skemmtun fyrir alla fjölskylduna og gefur yngstu tónlistarunnendunum einstakt tækifæri til að kynnast töfrum tónlistarinnar á klukkutíma löngum tónleikum.
Sígild ævintýri eru á sínum stað og á fyrstu tónleikunum verður sögð sagan um prinsinn Ívan sem bjargar prinsessu úr klóm Eldfuglsins, við heimsfræga tónlist Stravinskíjs.
Hljómsveitin heimsækir dýragarð og hinn margverðlaunaði Maxímús Músíkús villist að þessu sinni inn í tónlistarskóla.
Á Jólatónleikunum segir Páll Óskar Hjálmtýsson svo frá snjókarlinum sem lifnar óvænt við.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 10.10.09 - Laugardagur | 14:00 | Litli tónsprotinn - Ævintýrið um Eldfuglinn | Háskólabíó | Sinfóníuhljómsveit Íslands 2009 - 2010 | 1.700 kr. |
| 19.12.09 - Laugardagur | 14:00 | Litli tónsprotinn - Jólatónleikar | Háskólabíó | Sinfóníuhljómsveit Íslands 2009 - 2010 | 1.700 kr. |
| 06.02.10 - Laugardagur | 14:00 | Litli tónsprotinn - Heimsókn í dýragarðinn | Háskólabíó | Sinfóníuhljómsveit Íslands 2009 - 2010 | 1.700 kr. |
| 17.04.10 - Laugardagur | 14:00 | Litli tónsprotinn - Maximús trítlar í tónlistarskólann I | Háskólabíó | Sinfóníuhljómsveit Íslands 2009 - 2010 | 1.700 kr. |


