- Þú ert hér »
Ljótu hálfvitarnir

Ljótu hálfvitarnir verða með sína hefðbundnu útgáfutónleika að Ýdölum í Aðaldal í Þingeyjarsýslu, föstudaginn 5. júní. Tónleikarnir hefjast kl. 21. en húsið opnar klukkan 20.
Tilefnið er að sjálfsögðu þá nýútkomin plata hálfvitanna en verður um þessar mundir komin í allar helstu plötubúðirlandsins. Platan nýja er uppfull af lögum um helstu hugðarefni hálfvitans. Samskipti við hið fagra kyn, sjór og bjór er þar áberandi, m.a. lagið Lukkutroll sem hefur hljómað nokkuð í útvörpum síðustu vikur, en þar fær sjómannslífið sannkallaða hálfvitameðferð.
Hálfvitarnir verða í banastuði enda á heimavelli og ekki skemmir að góðir gestir munu kíkja í heimsókn
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 05.06.09 - Föstudagur | 21:00 | Ljótu hálfvitarnir 2009 - Útgáfutónleikar | Ýdalir, Aðaldal | Ljótu hálfvitarnir ehf | 2.000 kr. |


