- Þú ert hér »
Raggi Bjarna

- Að gefnu tilefni: Kvöldtónleikar Ragga Bjarna hefjast klukkan 21.00 -
Einn dáðasti listamaður þjóðarinnar verður 75 ára þriðjudaginn 22. september og af því tilefni verður slegið upp einstaklega glæsilegum tónlistarviðburði í Höllinni laugardaginn 26. september.
Hvergi verður til sparað í umgjörð og glæsileika og verður Raggi dyggilega studdur af landsliði hljóðfæraleikara, strengjasveit, góðvinum og stórstjörnum.
Gestirnir í þessum magnaða afmælisfagnaði verða ekki af verri endanum en eftirfarandi snillingar eru staðfestir: Björgvin Halldórsson, Diddú, Guðrún Gunnarsdóttir, Hemmi Gunn, Laddi, Mugison, Páll Óskar, Stefán Hilmarsson, Sumargleðin & Buff.
Kynnir er Þorgeir Ástvaldsson og sérstakir heiðursgestir eru Guðmundur Steingrímsson og Ólafur Gaukur úr KK sextettinum. Ekki er loku fyrir það skotið að fleiri góðir gestir bætist í hópinn áður en yfir lýkur.
Að gefnu tilefni: Kvöldtónleikar Ragga Bjarna hefjast klukkan 21.00
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 26.09.09 - Laugardagur | 16:00 | Raggi Bjarna - Aukatónleikar | Laugardalshöll | Sena | 9.900 kr. / 7.900 kr. / 6.900 kr. / 4.900 kr. |
| 26.09.09 - Laugardagur | 21:00 | Raggi Bjarna - 75 ára afmælistónleikar | Laugardalshöll | Sena | 9.900 kr. / 7.900 kr. / 6.900 kr. / 4.900 kr. |


