Joe Pug

Joe Pug (USA) spilar á Kaffi Rósenberg fimmtudaginn 2.júlí n.k.
Bob Justman & Snorri hita upp.
Joe Pug er 25 ára gamall þjóðlagasöngvari af gamla skólanum fæddur í Norður Karólínu en býr nú í Chicago. Ferill hans sem tónlistarmaður hófst ekki fyrr en síðla árs 2007 en áður hafði Joe unnið fyrir sér sem smiður. Fyrsta stuttskífan Joe, Nation of Heat, kom út árið 2008. Frá útgáfu skífunnar hefur Joe verið á stöðugu tónleikaferðalagi og spilað með ekki minni spámönnum en t.d. M. Ward, Steve Earle, Josh Ritter og The Flatlanders. Sumarið 2009 verður einnig spennandi fyrir Joe, en hann mun spila á Bonnaroo, Lollapalooza og hinum margfræga Newport Folk Festival, sem allir alvöru Dylan áhugamenn kannast vel við.
Tónleikar Joe Pug á Rósenberg eru hans fyrstu utan Bandaríkjanna, en hann stoppar hér á leið sinni til Noregs þar sem hann kemur fram á tónlistarhátíðinni Bukta Outdoor Music Festival í Tromsö.
Bob Justman er eitt margra aukasjálfa tónlistarmannsins Kristinns Gunnars
Blöndal (áður í Ensími og Botnleðju). Fyrsta breiðskífa hans, “Happiness & Woe” kom út snemma á þessu ári hjá Smekkleysu, og mun koma út síðla árs í Bretlandi í gegnum One Little Indian.
Snorri er 25 ára Reykvískur tónlistarmaður sem vinnur nú að upptökum á sinni fyrstu sólóskífu. Skífan er væntanleg með haustinu.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 02.07.09 - Fimmtudagur | 21:00 | Joe Pug - Tónleikar | Café Rosenberg | Fröken ehf | 1.000 kr. |

