Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

09.09.09. Þessa mögnuðu dagsetningu ber upp á miðvikudaginn 9. september nk. og verða 100 ár þangað til hún birtist næst. Það verða stórtónleikar haldnir til heiðurs John Lennon á NASA þennan dag og hefjast þeir kl. 21.00.

Einvalalið söngvara og hljóðfæraleikara stígur á svið og verða tónleikarnir tvískiptir. Lennonlög frá Bítlaárunum 1963-1969 og eftir hlé verða flutt Lennonlög frá New York tímabilinu 1970-1980.

Níu söngvarar koma fram: Björgvin Halldórs, Daníel Ágúst, Egill Ólafs, Haukur Heiðar jr., Helgi Björns, Ingó, Jóhann Helga, Krummi og Stefán Hilmars.

Bandið verður ekki af verri endanum. Á hljómborð verður Magnús Kjartansson, Villi Guðjóns og Jón Elvar Hafsteins á gítara, Jón Ólafsson á bassa og Ásgeir Óskarsson á trommur.

Kynnir á tónleikunum verður Ólafur Páll Gunnarsson. Hljóðmyndin er í traustum höndum Haffa Tempó og Jóhannns Rúnars Þorgeirssonar Exton sér um lýsingu og sviðstjóri er Ágúst Ágústsson. Framkvæmdina annast Óttar Felix Hauksson.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
09.09.09 - Miðvikudagur 21:00 John Lennon - Tónleikar Nasa Zonet ehf 2.900 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



Macland.is
Brim