9.9.9
Ráðstefna um nýju samfélögin, nýju lögmálin, nýju tækifærin
Yfir helmingur þjóðarinnar er kominn á Facebook og allir fylgjast með öllum. Fólk missir vinnuna vegna bloggskrifa. Fréttir berast í gegnum twitter áður en þær birtast í fjölmiðlum. Er komið árið 1984?
Samfélagið er að taka miklum breytingum með þessum "nýju samfélögum". Hvað veldur? Hverjar eru hætturnar sem við stöndum frammi fyrir og hver eru tækifærin? Riða undirstöður samfélagsins undan þessum nýju fyrirbærum eða eru þarna tækifærin til þess að ná undraverðum árangri í markaðssetningu fyrir lítinn sem engan pening?
Þessar spurningar og margar fleiri eru viðfangsefni 9.9.9 ráðstefnunnar, fyrstu ráðstefnunnar á Íslandi um netsamfélögin og áhrif þeirra á hin ýmsu svið samfélagsins. Meðal fyrirlesara verður fólk úr viðskiptalífinu, fjölmiðlum og stjórnmálum - og líka bara "venjulegt fólk", sem mun segja okkur frá því hvaða áhrif netsamfélögin eru að hafa, hvað beri að varast og hver tækifærin eru sem bíða eftir því að við grípum þau.
Er þetta framtíðin? Eða er þetta bara nútíðin?
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 09.09.09 - Miðvikudagur | 09:00 | 9.9.9 - nýju samfélögin, lögmálin og tækifærin | Salurinn | Salurinn í Kópavogi | 9.990 kr. |

