- Þú ert hér »
Damien Rice

- UPPSELT -
Damien Rice frumflytur nýtt efni á Íslandi.
- Hljóðritar og filmar frumflutning á nýju efni frammi fyrir íslenskum áhorfendum.
Írski tónlistarmaðurinn Damien Rice er væntanlegur til landsins í byrjun nóvember. Damien mun þá halda hér svokallaðar opnar upptökur þarsem hann mun hljóðrita og filma frumflutning á nýju efni frammi fyrir íslenskum áhorfendum.
Opnu upptökurnar munu fara fram í afar litlu rými sem býður upp á áður óþekkta nálægð milli Damien og áhorfenda. Auk þess að frumflytja nýtt efni mun Damien einnig leika lög af fyrri plötum sínum og eftir flutninginn munu áhorfendur eiga kost á því að spyrja tónlistarmanninn spjörunum úr.
Um fernar opnar upptökur verður að ræða dagana 4. - 5. nóvember og munu einungis 90 áhorfendur komast inn á hverja fyrir sig.
Nákvæm staðsetning verður ekki gefin upp fyrr en nokkrum klst. áður en þær hefjast en þó skal tekið fram að þær verða á höfuðborgarsvæðinu.
Hámarksfjöldi keyptra aðgöngumiða er bundinn við tvo fyrir hvern kaupanda. ATH að miðasala mun eingöngu fara fram á midi.is, ekki á afgreiðslustöðum midi.is
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 04.11.09 - Miðvikudagur | 18:00 | Damien Rice - Opnar upptökur - UPPSELT | Höfuðborgarsvæðið | ks / et | 5.900 kr. |
| 04.11.09 - Miðvikudagur | 22:00 | Damien Rice - Opnar upptökur - UPPSELT | Höfuðborgarsvæðið | ks / et | 5.900 kr. |
| 05.11.09 - Fimmtudagur | 18:00 | Damien Rice - Opnar upptökur - UPPSELT | Höfuðborgarsvæðið | ks / et | 5.900 kr. |
| 05.11.09 - Fimmtudagur | 22:00 | Damien Rice - Opnar upptökur - UPPSELT | Höfuðborgarsvæðið | ks / et | 5.900 kr. |


