Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Fjölskyldutónleikar Ljótu hálfvitanna í Salnum

Sunnudaginn 6. desember hyggjast Ljótu hálfvitarnir halda miðdegistónleika í Salnum í Kópavogi. Þetta er ekki síst hugsað til þess að aðdáendum hálfvitanna í yngri kantinum gefist kostur á að sjá þá á tónleikum en tækifæri til þess hafa ekki verið mörg hingað til. Á tónleikunum hyggjast þeir ljótu flytja öll sín hálfvitalegustu lög, bæði af plötunum tveimur og svo óútgefin. Það má í það minnsta ganga að því nokkuð vísu að smellir á borð við Son hafsins og Lukkutrollið munu hljóma. Á þessum árstíma er líka aldrei að vita nema jólalög skjóti upp úfnum kollinum.

Tónleikarnir hefjast kl 15.00 og aðgangseyrir er 1.500 kr. Forsala er á www.midi.is

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
06.12.09 - Sunnudagur 15:00 Ljótu hálfvitarnir - Fjölskyldutónleikar í Salnum Salurinn Salurinn í Kópavogi 1.500 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash