Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Jólatónleikar Mótettukórs Hallgrímskirkju
Hátign helgra dóma

Mótettukór Hallgrímskirkju hefur frá stofnun sinni árið 1982, glatt tugþúsundir Íslendinga á aðventu, en jólatónleikar hans skipa veglegan sess í ríkulegu tónleikahaldi í Reykjavík. Á undanförnum árum hefur kórinn flutt aðventu- og jólatónlist með einsöngvurum í fremstu röð og jafnan fengið frábæra dóma fyrir vandaðan flutning.

Á efnisskránni eru verk eftir innlenda og erlenda höfunda, bæði vel þekktar perlur svo og minna þekkt kórverk, m.a. nýleg jólaverk eftir höfundana Eric Whitacre og Ola Gjeilo, grípandi kórverk þar sem höfundar leika með margradda, blæbrigðaríka hljóma, sem undirstrika tign og fegurð aðventu- og jólaboðskaparins. Auk þess mun kórinn syngja íslenska og erlenda jólasálma, þar á meðal aðventutónlist eftir Giovanni Perluigi da Palestrina, ómissandi jólakórverk eftir Johann Eccard, Betlehemsstjörnuna eftir Áskel Jónsson og Jólagjöfina eftir Hörð Áskelsson. Á meðal sálmanna sem sungnir verða má nefna Nóttin var sú ágæt ein og Guðs kristni í heimi, þar sem kirkjugestum er boðið að taka undir sönginn.

Einleikari á tónleikunum er Björn Steinar Sólbergsson, sem flytur franska orgeltónlist tengda jólum á hið glæsilega Klais-orgel Hallgrímskirkju. Stjórnandi er Hörður Áskelsson.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
05.12.09 - Laugardagur 21:00 Mótettukór Hallgrímskirkju 2009 - Jólatónleikar Hallgrímskirkja Mótettukór Hallgrímskirkju 3.000 kr.
06.12.09 - Sunnudagur 17:00 Mótettukór Hallgrímskirkju 2009 - Jólatónleikar Hallgrímskirkja Mótettukór Hallgrímskirkju 3.000 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



World Class
Uppfæra Flash