- Þú ert hér »
Tenórarnir 3

Hátíðartónleikar í Háskólabíói 3. janúar 2010 með stórhljómsveit og góðum gestum
Tenórarnir þrír halda nú sína fyrstu nýárstónleika með pompi og prakt en með þeim verður stór hljómsveit auk góðra gesta og kóra.
Tenórarnir eru þeir Kolbeinn Ketilsson, Jóhann Friðgeir Valdimarsson og Snorri Wium sem eru þeir íslensku óperusöngvarar er náð hafa hvað lengst í óperuheiminum, hér heima og erlendis. Hafa þeir allir hlotið mikið lof fyrir söng sinn og koma fram í uppfærslum og á tónleikum víða um heim.
Á efnisskránni verða margar af fegurstu aríum óperubókmenntanna, íslenskar perlur auk klassískra sönglaga og hátíðarsálma. Einnig mun sitthvað óvænt og skemmtilegt líta dagsins ljós.
Það er óhætt að lofa hátíðlegri og ógleymanlegri upplifum í Háskólabíói í upphafi nýs árs; 2010.
Fagnaðu nýju ári með ógleymanlegri upplifun!
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 03.01.10 - Sunnudagur | 20:00 | Tenórarnir 3 - Nýárstónleikar | Háskólabíó | Frost | 7.990 kr. / 6.990 kr. |

