Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Jón Jónsson, Smirnoff, Tuborg og GoGoYoko kynna:
Tónlistarhátíðin Jól Jólsson á Hótel Íslandi 18. desember

FORSÖLU (NETSÖLU) ER NÚ LOKIÐ, MIÐASALA FER FRAM VIÐ INNGANG

Viðburðafyrirtækið Jón Jónsson fagnar tveggja ára afmæli sínu í næsta mánuði og ætlar að spenna bogann hátt í tilefni þess.

Þann 18. desember næstkomandi mun afmælisfagnaðurinn fara fram og um er að ræða stórglæsilega tónlistarhátíð sem haldin verður á þremur sviðum á Hótel Íslandi. Stílað verður inn á að tónleikagestir geti valið stemmningu sem hentar hverjum og einum og er gullslegið loforð að flestir ættu að geta fundið tónlist við sitt hæfi sama hvaða kynslóð hann eða hún tilheyrir. Það besta er að enginn kemur til með dúsa úti í röð, frost- og vindbarinn, eftir að sjá uppáhalds tónlistaratriðið sitt.

Sviðin þrjú hafa hlotið nöfn við hæfi og kallast þau nú Jólakötturin, Betlehem og Rómanskotið en í koti Rómans munu allir knúsast og kyssast í dyrunum undir mistilteini - í sannkallaðri jólastemningu.

Dregið verður úr jólahappdrætti og boðið verður upp á einstakt klósettdiskó. Klukkan 03:00 að morgni 19. desember mun snjóa - óháð veðri.

Fjöldi tónlistarmanna, hljómsveita og plötusnúða munu koma fram á tónlistarhátíðinni. Fyrstu tilkynntu atriðin eru kanónur á íslenskan mælikvarða og hafa dælt stuði í æðakerfi landsmanna í gegnum árin ásamt yngri atriðum sem hafa sótt að fólki með kætandi, upplífgandi og ögrandi hætti.

Miðaverð: 2.900,- kr. í forsölu (í takmarkaðan tíma). Tryggðu þér miða snemma á besta verðinu!

Hér er hin glæsilega hátíðardagsskrá :

Betlehem (stóra sviðið):
---
22:00 Dj Margeir
23:00 Party Zone DJ's
00:00 Sykur
00:45 Ben Frost
01:20 Human Woman
01:30 Gusgus
03:10 Hjálpum þeim (samsöngur)
03:20 Fm Belfast
04:30 DJ Terrordisco

Rómanskot (Norðursalur):
---
22:00 DJ Sexy Lazer
23:00 DJ Alfons X
00:00 Feldberg
00:45 Egill Sæbjörnsson
01:30 Lúdó & Stefán
02:40 BB & Blake
03:20 Berndsen
04:00 DJ Casanova

Jólakötturinn (Ásbyrgi):
---
22:00 DJ President Bongo
23:00 DJ Casanova
00:00 Breakbeat.is DJ's
01:00 Legend
01:15 Captain Fufanu
01:45 Breakbeat.is DJ's
02:15 Oculus
03:30 Hugarástand DJ's
04:45 Gluteus Maximus

Klósettdiskó:
---
00:00 DJ Bensol + gestir
01:15 DJ Terrordisco
02:30 DJ Dirt Machine
04:00 DJ Bensol + gestir

Jólasveinninn fer á kreik uppúr miðnætti.

(Birt með fyrirvara um breytingar)

Með vinsemd og virðingu
Jón Jónsson

18 ára aldurstakmark.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
18.12.09 - Föstudagur 22:00 Jól Jólsson - Forsala Hótel Ísland Jón Jónsson 2.900 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



Macland.is
Uppfæra Flash