Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Síðasti sjens – Litlu áramótin á Nasa 30. desember
FM Belfst og Retro Stefson á sannkölluðum stórtónleikum

Retro Stefson og FM Belfast slá saman í sannkallaða stórtónleika á Nasa miðvikudaginn 30. desember nk. Þar gefst mannkyninu síðasti sjens að dansa árið á braut með þessum frábæru hljómsveitum. Stefnan er sett á stanslausa gleði langt fram eftir 31. desember. Þetta eru Litlu áramótin og þau eru tekin með stæl!

Tónleikar þessara hljómsveita saman á Réttum, Airwaves og Slátrinu sýndu svo ekki var um villst að þar færu öflugustu hljómsveitir landsins. Kokteillin er í senn eldfimur og seiðandi. Það verður ekkert gefið eftir – við ætlum að skemmta okkur á Litlu áramótunum 2009 – það er sko síðasti sjens!

Húsið opnar kl. 22:00 og mun gleðin hefjast kl 23:00.
Miðaverð er aðeins 1.200 kr. í forsölu en hækkar sé keypt við hurð.

FM Belfast hefur að undanförnu ferðast talsvert um Evrópu en plata þeirra How to make friends kom út í Frakklandi í byrjun desember og verður dreift í Bandaríkjunum og Evrópu eftir áramótin. Hljómsveitin spilaði á tónlistarhátíðinni Trans Musicales við góðan orðstír nú í byrjun desember og eftir áramótin heldur hún á Eurosonic hátíðina og síðan á tónleikaferðalag um alla Evrópu.

Retro Stefson hefur frá útgáfu Montana spilað og spilað út um allt land. Nýtt efni hefur verið að læðast inn á prógrammið og er stefnt á útgáfu á næsta ári. Hljómsveitin stefnir á að halda í víking með vorinu og hefur áhugi á sveitinni  á erlendri grundu farið vaxandi.

20 ára aldurstakmark.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
30.12.09 - Miðvikudagur 23:00 Síðasti sjens 2009 - FM Belfst og Retro Stefson Nasa RetroBelfast 1.200 kr.

© 2010 Miði.is ehf



www.ha.is
Uppfæra Flash