Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Concert kynnir í samvinnu við EB Kerfi og Háskólabíó
Stórtónleikar tólfta ári í röð til styrktar Styrktarfélagi Krabbameinssjúkra barna, Háskólabíói 16. janúar kl. 16.00

Sálin hans Jóns míns, Ingó og Veðurguðirnir, Buff, Hvanndalsbræður, Hafdís Huld, Friðrik Ómar & Jogvan, Jóhanna Guðrún, Skítamórall, Dikta, Íslenska Sveitin, Ragnheiður Gröndal, Bollywoodshow Yesmine og sérstakur gestur Geir Ólafs

Það er orðinn árviss viðburður, að framvarðarsveit íslenskrar popptónlistar komi saman við áramót í Háskólabíói við Hagatorg og stilli saman strengi til styrktar SKB. Árið í ár er engin undantekning og hefur dagskráin sjaldan eða aldrei verið eins glæsileg. Á undanförnum árum hafa  yfir 30 milljónir króna safnast á þessum tónleikum, og nú  er markmiðið að sú upphæð hækki í 32.5 milljónir króna.

Að gefnu tilefni, er rétt að láta það fylgja, að á tónleikunum í gegnum tíðina hefur komið fram rjómi þekktustu tónlistarmanna landsins á hverjum tíma og hafa allir þeir sem komið hafa að tónleikunum gefið vinnu sína til fulls.  Um leið hafa allir tæknimenn og aðrir starfsmenn tónleikanna gefið vinnu sína. Öll fyrirtæki, sem að verkefninu hafa komið, hafa einnig gefið alla sína vinnu. Að sjálfsögðu er engin breyting þar á.

Árlega greinast að meðaltali 10 - 12 börn og unglingar 18 ára og yngri með krabbamein á Íslandi. Markmiðið með stofnun Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna var m.a. að styðja við bakið á þeim og aðstandendum þeirra bæði fjárhagslega og félagslega. Í upphafi hafði félagið  takmarkað bolmagn til framkvæmda en úr rættist með stórri landssöfnun 1993, þá var m.a. stofnaður neyðarsjóður sem meðlimir SKB geta sótt um fjárstyrk úr. Fimm manna nefnd metur umsóknir og úthlutar styrkjum en tengist SKB ekki að neinu öðru leyti.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
16.01.10 - Laugardagur 16:00 Stórtónleikar SKB 2010 -1 - Styrktartónleikar Háskólabíó Concert 2.500 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash