Eivør

Eivør Pálsdóttir heldur tónleika á vegum Listafélags Langholtskirkju í Langholtskirkju sunnudaginn 24. janúar kl. 20.
Eivøru þarf vart að kynna. Hún hefur sungið sig inn í hjörtu landsmanna með einsökum hæfileikum sínum sem sumum finnst ekki af þessum heimi. Hún kom til Íslands árið 2002 og hafði þá í nokkur ár verið í söngnámi hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur í Færeyjum. Hér bjó hún í fjögur ár, lengst af hjá þeim Ólöfu og Jóni Stefánssyni sem líta á hana sem fósturdóttur. Hún hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2003 sem besti flytjandi og söngvari og 2004 fékk hún leiklistarverðlaunin Gríman fyrir tónlist og flutning í verkinu Úlfshamarssaga.
Á tónleikunum í Langholtskirkju verður hún ein, berfætt og með gítarinn sinn og mun flytja eigin lög. Nú fyrir jólin gaf Eivör út tónleikaplotuna Eivör Live.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 24.01.10 - Sunnudagur | 20:00 | Eivør - Tónleikar | Langholtskirkja | Listafélag Langholtskirkju | 3.000 kr. |


