- Þú ert hér »
Latabæjarhátíð í Höllinni

Tengt efni
Nánari upplýsingar á vefnum
Fjölskylduskemmtun ársins er að bresta á!
Ný styttist í fjölskylduskemmtun ársins og það eru góðar fréttir sem berast úr herbúðum Latabæjar; allir sem kaupa miða fá ókeypis í Laugardalslaugina og Skautahöllina alla tónleikahelgina og fá auk þess 2 fyrir 1 í Húsdýragarðinn.
Staðfest er hverjir leika hinar landsþekktu persónur úr Latabæ: Örn Árna er Bæjarstjórinn, Gói er Glanni glæpur og við kynnum til leiks Unni Eggertsdóttur sem hina nýju Sollu Stirðu.
Það er svo enginn annar en Magnús Scheving sjálfur sem leikur Íþróttaálfinn - í allra síðasta skipti.
Eftirfarandi stórstjörnur hafa þar að auki boðað komu sína: Björgvin og Fransína mús, Ingó úr Veðurguðunum, Jónsi úr Svörtum fötum, Jógvan, Jóhanna Guðrún, Laddi, Skoppa og Skrítla og Sveppi & Villi
Mikið fjör á anddyrinu
Ráðgert er að skemmtunin taki um 70 mínútur en klukkutíma áður en fjörið hefst á sviðinu verður húsið opnað og það verður sannarlega nóg um að vera í anddyrinu þangað til tónleikarnir byrja. Töframaður mun leika listir sínar, krökkum mun bjóðast Latabæjarmyndatökur, hægt verður að taka þátt í lukkuleik og svo mætti lengi telja.
Hér er einfaldlega á ferðinni fjölskylduhátíð sem engin íslensk fjölskylda getur misst af.
Miðasala á tónleikana
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 27.03.10 - Laugardagur | 15:00 | Latabæjarhátíð í Höllinni - STÚKA (sitjandi) - UPPSELT | Laugardalshöll - Stúka | Bravo | 3.900 kr. |
| 27.03.10 - Laugardagur | 15:00 | Latabæjarhátíð í Höllinni - PALLAR (sitjandi) - UPPSELT | Laugardalshöll - Pallar | Bravo | 3.400 kr. |
| 27.03.10 - Laugardagur | 15:00 | Latabæjarhátíð í Höllinni - GÓLF (standandi - sitjandi á gólfi) | Laugardalshöll - Stæði | Bravo | 2.900 kr. |


