Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Hr. Örlygur og RAM Entertainment kynna í samstarfi við Thule og Norska Sendiráðið: Tónleikaveisla á NASA föstudagskvöldið 5 Mars n.k.

Fram koma tvær af aðal hljómsveitunum frá síðustu Iceland Airwaves hátíð, Casiokids frá Noregi, Choir Of Young Believers frá Danmörku og svo íslensku hljómsveitirnar Berndsen & The Young Boys og Sykur. Fleiri listamenn verða tilkynntir innan skams.

CasioKids eru án efa ein af þeim hljómsveitum sem vöktu hvað mesta athygli á síðustu Iceland Airwaves hátíð, þeim var lofað hástert af öllum helstu miðlum er sóttu hátíðina og var þeim í framhaldinu boðið að hita upp fyrir íslandsvinina Hot Chip á tónleikaferðalagi þeirra um Evrópu nú í Febrúar.  Koma þeir því ferskir beint til Íslands og munu án efa gera allt vitlaust fyrir tónþyrsta íslendinga.

Choir Of Young Believers gerðu einnig góða lukku á Airwaves og eru ein af skærustu stjörnum dana um þessar mundir.  Framistaða þeirra á hátíðinni var frábær þar sem þeir tróðu upp fyrir troðfullu Listasafni.  Þeir eru nú á leið til tónleikahalds til Bandaríkjana og óskuðu því sérstaklega eftir því að koma hingað til þess að spila aftur fyrir íslendinga.

20 ára aldurstakmark.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
05.03.10 - Föstudagur 23:00 CasioKids - Choir Of Young Believers Nasa Kronik Ent 1.500 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Brim
Uppfæra Flash