Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Elvis Presley - í 75 ár

Elvis Presley fæddist í Tupelo í Mississippi-ríki í Bandaríkjunum 8. janúar árið 1935 og hefði því orðið 75 ára í janúar sl. Hann fluttist þrettán ára til Memphis í sama ríki. Þar hóf hann feril sinn sem tónlistarmaður, fyrst með því að syngja rockabilly sem var eins konar bræðingur af country og  ryþmablús. Elvis sló fyrst í gegn 1956, tuttugu og eins árs, og varð skjótt skærasta rokk og roll stjarnan, en rokkið var þá ný tónlistargrein innan dægurlagatónlistarinnar. Elvis var oft nefndur konungur rokksins eða bara kóngurinn. Að tilefni 75 ára afmælis kóngsins verða því haldnir tónleikar laugardaginn 20. febrúar í Salnum, Kópavogi þar sem flutt verða öll hans vinsælustu lög af frábærum listamönnum með Friðrik Ómar í fararbroddi. Hér er á ferðinni einstakt tækifæri til að fá eðal nostalgíukast með þessum frábæru tónleikum. Einstök kvöldstund!

Hljómsveitina skipa:
Þórir Baldursson píanó
Ómar Guðjónsson gítar
Róbert Þórhallsson bassi
Jóhann Hjörleifsson trommur
Einar Þór Jóhannsson gítar og raddir
Pétur Örn Guðmundsson raddir
Heiða Ólafsdóttir raddir

Meðal laga á efnisskránni eru Jailhouse Rock, Cant help falling in love, Love me tender,
That´s alright mama, Suspicious Minds, Always on my mind og fl.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
20.02.10 - Laugardagur 17:00 Elvis Presley - í 75 ár - Friðrik Ómar - aukatónleikar Salurinn Salurinn í Kópavogi 3.300 kr.
20.02.10 - Laugardagur 20:30 Elvis Presley - í 75 ár - Friðrik Ómar Salurinn Salurinn í Kópavogi 3.300 kr.
24.02.10 - Miðvikudagur 20:30 Elvis Presley - í 75 ár - Aukatónleikar Salurinn Salurinn í Kópavogi 3.300 kr.
04.03.10 - Fimmtudagur 20:00 Elvis Presley - í 75 ár - Friðrik Ómar Salurinn Salurinn í Kópavogi 3.300 kr.
05.03.10 - Föstudagur 20:00 Elvis Presley - í 75 ár - Friðrik Ómar Salurinn Salurinn í Kópavogi 3.300 kr.
25.03.10 - Fimmtudagur 20:00 Elvis Presley - í 75 ár - Friðrik ómar Salurinn Salurinn í Kópavogi 3.300 kr.
26.03.10 - Föstudagur 20:00 Elvis Presley - í 75 ár - Friðrik Ómar Salurinn Salurinn í Kópavogi 3.300 kr.
27.03.10 - Laugardagur 17:00 Elvis Presley - í 75 ár - Friðrik Ómar Salurinn Salurinn í Kópavogi 3.300 kr.
27.03.10 - Laugardagur 21:00 Elvis Presley - í 75 ár - Friðrik Ómar Salurinn Salurinn í Kópavogi 3.300 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



Uppfæra Flash
Brim