Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Fertugsafmæli Páls Óskars – Tónleikar ásamt Hjaltalín.
Hinn síungi diskókóngur og eina sanna íslenska stórdiskódíva, Páll Óskar fagnar, ótrúlegt en satt, fertugsafmæli sínu þann 16.mars næstkomandi. Að því tilefni verður blásið til mikillar veislu á veitingastaðnum NASA í kringum afmælisdaginn, með ýmsum tónleikum og uppákomum þar sem Páll Óskar verður í aðalhlutverki.

Liður í þessum hátíðarhöldum verða tónleikar fimmtudagskvöldið 18. mars þar sem Páll Óskar mun ásamt hlómsveitinni Hjaltalín leika lög sem spanna breiðan og fjölbreytilegan tónlistarferil hans.

Páll Óskar hefur verið ein helsta poppstjarna Íslands allt frá því að hann gaf út frumraun sína og óð sinn til diskótónlistar, Stuð, árið 1993. Á eftir fylgdu sólóplöturnar Palli (1995), Seif (1996) & Deep Inside (1999) áður en að samstarf Páls Óskars við hörpuleikarann Monkiku Abendroth gaf af sér plöturnar Ef ég sofna ekki í nótt (2001) og Ljósin heima (2003).  Annað samstarfsverkefni, við kokteil- og salsasveitina Milljónamæringana, gat af sér plöturnar Milljón á mann (1994) og Þetta er nú meiri vitleysan (2001) & annað svipað verkefni var platan Stereo (1998) þar sem Páll Óskar og hljómsveitin Casino léku þekkta kokteil & bossa nova slagara. Árið 2007 var aftur kominn tími á diskógallann og dansskóna þegar að hin metnaðarfulla og feykivinsæla plata Allt fyrir ástina leit dagsins ljós.

Liður í þessum hátíðarhöldum verða tónleikar fimmtudagskvöldið 18. mars þar sem Páll Óskar mun ásamt hlómsveitinni Hjaltalín leika lög sem spanna breiðan og fjölbreytilegan tónlistarferil hans. Auk þessa mun Hjaltalín spila fulla tónleika af eigin efni, áður en Páll Óskar stígur á svið með þeim.

ATH Uppselt er á tónleikana í forsölu, miðar verða seldir við inngang frá kl 21.00 á tónleikadag.

20 ára aldurstakmark.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
18.03.10 - Fimmtudagur 22:00 Páll Óskar og Hjaltalín - Fertugsafmæli Páls Óskars Nasa Fröken ehf 2.000 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash