Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Andkristnihátíð er árleg þungarokkshátíð sem haldin hefur verið í Reykjavík frá árinu 2000. Engin þungarokkstónleikaröð hefur verið haldin lengur samfellt á Íslandi. Stofnendur hátíðarinnar eru þeir Aðalbjörn Tryggvason og Guðmundur Óli Pálmason meðlimir Sólstafa ásamt Sigurði Harðarsyni, söngvara Forgarðs Helvítis. Kristnihátíð hafði verið haldin þá um sumarið og kostaði ríkissjóð mikið fé. Ýmislegt var umdeilt í kring um hana, svo stofnendum þótti við hæfi að svara henni með því að halda tónlistarhátíð með þessu nafni.

Í tilefni 10 ára afmælis hátíðarinnar höfum við ákveðið að opna nýjan kafla í sögu hátíðarinnar og fagna þessum tímamótum með því að bjóða erlendum sveitum til að taka þátt í hátíðinni með okkur.  Hljómsveitirnar Rotting Christ frá Grikklandi og Hate frá Póllandi munu því stíga á stokk ásamt 10 af bestu þungarokkshljómsveitum Íslendinga á hátíðinni, en þetta verður helgi þar sem íslenskt- sem og erlent þungarokk verður í hávegum haft.

18 ára aldurstakmark.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



World Class
Uppfæra Flash