Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Blúshátíð í Reykjavík kemur með vorið
Blúshátíð í Reykjavík 2010 verður haldin 27. mars – 1. apríl. Aðalgestir hátíðarinnar í ár verða Super Chikan and the Fighting Cocks, sem koma sjóðheit frá Mississippi; stórstjarnan Billy Branch frá Chicago og blúsdívan Deitra Farr.  Þrennir stórtónleikar verða á Hilton Reykjavík Nordica, þriðjudags-, miðvikudags- og fimmtudagskvöld, og fjórar dívur syngja í Fríkirkjunni á pálmasunnudag, 28. mars.

Sunnudag 28. mars kl. 20 – Fríkirkjan í Reykjavík
Fjórar dívur:  Deitra Farr, Kristjana Stefáns, Ragnheiður Gröndal og Brynhildur Björnsdóttir. Tónlistarflytjandi ársins Davíð Þór Jónson leikur á flygil.

Þriðjudag 30. mars kl. 20 – Hilton Reykjavík Nordica
Deitra Farr, þessi stórkostlega blússöngkona frá Chicago tryllir gesti Blúshátíðar í Reykjavík í ár. Deitra er ekta blússöngkona og syngur blús eins og hann gerist bestur. Á tónleikunum kemur einnig fram Nordic All Stars Blues Band með nýrri áhöfn skipaðri úrvali norrænna blúsmanna.

Miðvikudag 31. mars kl. 20 – Hilton Reykjavík Nordica
Billy Branch, goðsögn úr Chicago blúsnum; fyrrum munnhörpuleikari Willie Dixon og Chicago Blues  All Stars kemur í fyrsta skipti fram á Blúshátíð í Reykjavík.  Billy Branch er einn af virtustu og vinsælustu blúsmönnum heims í dag, margverðlaunaður og hefur spilað með flestum stórstjörnum blústónlistarinnar frá upphafi. Á tónleikunum kemur einnig fram íslenska stórsöngkonan Ragnheiður Gröndal og syngur blús

Fimmtudag 1. apríl, skírdag kl. 20 – Hilton Reykjavík Nordica
Super Chikan and the Fighting Cocks, koma beina leið frá Mississippi og eru líkleg til að gera allt vitlaust.  Þeir sem hafa upplifað tónleika þeirra eiga ekki orð af hrifningu. Super Chikan, er tilnefndur til fernra blúsverðlauna í ár. Hann er einstakur og litríkur tónlistarmaður og tónleikar hans eru mögnuð upplifun. The Fighting Cocks skipa þrjár frábærar blúskonur, LaLa Craigdelong, Heather Tackett og Jamiesa Turner.

Blúsmiðinn
Handhafi Blúsmiðans hefur aðgang að öllum þrennum tónleikunum á Hilton Reykjavik Nordica. Takmarkað magn Blúsmiða er í boði.

ATH: Miðasala fer fram við inngang alla daga hátíðarinnar.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
28.03.10 - Sunnudagur 20:00 Blúshátíð 2010 - Fjórar Dívur Fríkirkjan í Reykjavík Blúshátíð í Reykjavík 2.900 kr.
30.03.10 - Þriðjudagur 19:00 Blúshátíð 2010 - BLÚSMIÐINN Hilton Reykjavík Nordica Blúshátíð í Reykjavík 8.500 kr.
30.03.10 - Þriðjudagur 20:00 Blúshátíð 2010 - Deitra Farr Hilton Reykjavík Nordica Blúshátíð í Reykjavík 3.490 kr.
31.03.10 - Miðvikudagur 20:00 Blúshátíð 2010 - Billy Branch Hilton Reykjavík Nordica Blúshátíð í Reykjavík 3.490 kr.
01.04.10 - Fimmtudagur 20:00 Blúshátíð 2010 - Super Chikan and the Fighting Cocks Hilton Reykjavík Nordica Blúshátíð í Reykjavík 4.490 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



World Class
Uppfæra Flash