Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Hinn heimskunni norski píanóleikari Leif Ove Andsnes kemur fram á tónleikum þann 13. maí næstkomandi ásamt systkinunum Christian Tetzlaff fiðluleikara og Tönju Tetzlaff sellóleikara.

"Magnaður kraftur og hrífandi innsæi" eru orð blaðamanns Daily Telegraph um samstarf þessara merku einleikara og vina sem hafa ástríðu fyrir kammertónlist og koma reglulega fram saman. Á tónleikunum á Listahátíð í Reykjavík sameinar þetta sannkallaða súpertríó krafta sína í rómatískri og tilfinningaríkri efnisskrá sem er tileinkuð Robert Schumann, en í ár eru 200 ár liðin frá fæðingu hans.

Norski píanóleikarinn Leif Ove Andsnes hefur fest sig í sessi sem einn virtasti og eftirsóttasti tónlistarmaður klassískrar tónlistar og er aufúsugestur í öllum helstu tónleikasölum veraldar. Andsnes hefur verið á föstum samningi hjá EMI útgáfufyrirtækinu um árabil og hafa komið út yfir 30 geisladiskar þar sem hann leikur verk allt frá Bach til samtímatónlistar. Fyrir þá hefur hann verið tilnefndur til sjö Grammy-verðlauna en að auki hefur hann hlotið fjölmörg önnur verðlaun m.a. fern Gramophone verðlaun.

Blaðamaður New York Times sagði Christian Tetzlaff vera einn af stórkostlegustu hljóðfæraleikurum samtímans og var hann útnefndur hljóðfæraleikari ársins af blaðinu Musical America árið 2005. Tanja Tetzlaff hóf feril sinn á tíunda áratug síðustu aldar með því að komast á verðlaunapall í hinum ýmsu tónlistarkeppnum, m.a. hlaut hún fyrstu verðlaun í fyrstu alþjóðlegu tónlistarkeppninni í Vínarborg árið 1992.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
13.05.10 - Fimmtudagur 20:00 Leif Ove Andsnes - Christian og Tanja Tetzlaff Háskólabíó Listahátíð í Reykjavík 2010 4.900 kr. / 4.200 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



World Class
Uppfæra Flash