Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

-- ATH Miðar verða seldir við inngang í kvöld á Nasa --

Reykjavik Fashion Festival - Tónleikadagskrá á NASA. Peaches (ca), GusGus, Air France (se), Retro Stefson o.fl.

Tónleikadagskrá Reykjavik Fashion Festival fer fram á NASA við Austurvöll föstudaginn 19. mars og laugardaginn 20. mars.

Meðal þeirra sem koma fram er kanadíska tónlistarkonan Peaches og stórsveitin GusGus, en þetta eru fyrstu tónleikar hennar í Reykjavík á árinu. Ýmislegt fleira spennandi er í boði og má þar nefna; Air France frá Gautaborg, Bloodgroup, Sykur og Retro Stefson - sem eru vön að skapa ægilega stemmningu á NASA. Dagskrá verður á Kaffibarnum í upphafi tónleikakvöldana.

Peaches gaf í fyrra út breiðskífuna I Feel Cream sem m.a inniheldur klúbba-smellina "Talk to Me" og "Loose You". Peaches er þekkt fyrir einstaka sviðsframkomu og á að baki merkar breiðskífur á borð við The Teaches of Peaches og Fatherfucker sem innihalda lög á borð við "Fuck the Pain Away" og "Shake Yer Dix". Hún hefur unnið með tónlistarmönnum á borð við Iggy Pop, Marilyn Manson og Pink - og endurunnið lög Daft Punk, Yoko Ono og Queens of the Stone Age.

Miðasala
Stakir miðar eru í boði á sitthvort tónleikakvöldið - auk 2 Daga Passa sem veita aðgang að allri dagskránni.

2 DAGA PASSI = Armband
Þeir sem kaupa 2 Daga miða fá armband sem gildir á alla dagskránna.
Armbönd verða afhent á opnunarpartýi hátíðarinnar á Kaffibarnum, fimmtudaginn 18. mars (frá og með kl. 21) - og við hurð á NASA á tónleikadögum.

Reykjavik Fashion Festival - Tónleikadagskrá

Föstudagur 19 .mars - NASA
GusGus
Retro Stefson
Air France (SE) - dj set
(kl. 23.00)

Laugardagur 20. mars - NASA
Peaches (DE)
Bloodgroup
Sykur
Ladytron (UK) - dj set
(kl. 00.00)

----

Dagskrá á Kaffibar

Fimmtudagur 18. mars - Kaffibarinn (opnunarpartý)
Berndsen og Oculus
(kl. 21.00)

Föstudagur 19. mars - Kaffibarinn (föstudagspartý)
Jungle Fiction
(kl. 21.00)

Laugardagur 20. mars - Kaffibarinn (laugardagspartý)
Captain Fufanu
(kl. 21.00)

Sérstakt forsöluverð er í boði í takmarkað tíma fyrir þá fyrstu sem næsla sér í miða; 3.900 krónur á allt prógrammið. Almennt miðaverð er 4.900 krónur.

20 ára aldurstakmark.

Tónleikadagskráin samanstendur af þremur tónleikakvöldum þar sem tónlistin er númer 1,2 og 3 - og fram koma innlendar og erlendar hljómsveitir og listamenn. Engar tískusýningar eru hluti af dagskránni, heldur fara þær fram í Kaaber húsi og þaðan halda gestir niður á NASA.
Með miðakaupunum fylgja þrjú frábær lög með nokkrum af listamönnum hátíðarinnar á http://www.gogoyoko.com
Ný remix af lögunum Hateful með Gus Gus og My Arms með Bloodgroup ásamt glænýju lagi frá Oculus. Hitið ykkur upp fyrir hátíðina með þessari veglegu tónlistargjöf sem fylgir miðanum.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
19.03.10 - Föstudagur 23:00 Reykjavik Fashion Festival - 2ja DAGA PASSI - 2 DAY PASS Nasa Faxaflói ehf 3.900 kr.
19.03.10 - Föstudagur 23:59 Reykjavik Fashion Festival - GusGus o.fl. - RFF FRIDAY Nasa Faxaflói ehf 2.800 kr.
20.03.10 - Laugardagur 23:59 Reykjavik Fashion Festival - Peaches o.fl. - RFF SATURDAY Nasa Faxaflói ehf 2.800 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



World Class
Brim