Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

kimono kunngjöra útgáfutónleika fyrir plötuna: Easy Music For Difficult People
í Íslensku Óperunni.

Hljómsveitin kimono gaf út sína þriðju hljóðversplötu sl. desember við góðar undirtektir tónlistaráhugamanna.  Platan fékk nafnið Easy Music For Difficult People og var jaðarútgáfunni Kimi Records falið að koma henni í hendur áhugasamra hlustenda. Það hefur gengið svona líka vel og hafa gagnrýnendur keppst við að hlaða gripinn lofi. Plata Ársins á Morgunblaðinu, en það var Árni Matthíasson sem valdi; Plata ársins á rjominn.is; sú þriðja besta að mati Fréttablaðsins; 7. Besta platan að mati hlustenda Rásar 2 og loks vann hún tilnefningu í flokknum „Poppplata ársins“ á Íslensku Tónlistarverðlaununum sem fara fram síðar í mars.  Eins hefur henni verið vel tekið af rokkunnendum og skreið hæst í 7. Sætið á Tónlistanum.  Lítið hefur þó heyrst af plötunni í útvarpi og hafa meðlimir sveitarinnar bent á titil hennar því til útskýringar. Enginn veit þó hvað þeir eiga við með því.

kimono hafa spilað grimmt síðustu þrjá mánuði við rífandi undirtektir og nú á að reka lokahöggið með formlegum útgáfutónleikum í Íslensku Óperunni.  Þremenningarnir Kjartan, Alex og Gylfi ætla að tjalda miklu til þetta kvöld og verður engu til sparað til að sjá til þess að tónleikarnir verða sannkölluð veisla fyrir eyru og augu. Nánari lýsingu á innihaldi og efnisgerð tónleikanna, fyrir utan það að þeir verða í þremur pörtum, verður haldið leyndri að sinni svo ekki sé spillt fyrir upplifuninni.

ATH: Með hverjum kaupum fylgir lagið Tomorrow með Kimono í boði Gogoyoko. Endilega kynnið ykkur prófílsíðu Kimono á hinu ört vaxandi tónlistarsamfélagi Gogoyoko.
Slóðin er: www.gogoyoko.com/go/kimono

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
11.03.10 - Fimmtudagur 20:00 Útgáfutónleikar kimono - Íslenska óperan Íslenska óperan 1.500 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



World Class
Brim