- Þú ert hér »
Wacken Metal Battle 2010

Wacken er nafnið á litlum smábæ í Norður-Þýskalandi sem á hverju sumri umturnast í einn allsherjar risa þungarokksbæ þegar Wacken : Open : Air hátíðin er haldin. Fyrstu helgina í ágúst þjarka þar inn fyrir bæjarmörkin 80.000 gestir hvaðanæva úr heiminum til að hlusta á kanónur þungarokksins spila. Hefur þessi hátíð verið haldin sleitulaust síðan 1991 og er af mörgum talin Mekka allra þungarokkshátíða.
Skipuleggjendur hátíðarinnar hafa á síðustu árum gefið fjöldanum öllum af ungum og efnilegum hljómsveitum tækifæri til að koma og spila á hátíðinni og settu í því skyni hljómsveitakeppnina Wacken Metal Battle á laggirnar árið 2004. Sigursveit hennar hlýtur m.a. að launum hljómplötusamning, fullt af græjum og hljóðfærum og heiðurinn af því að spila aftur á hátíðinni árið eftir á mun betri stað í prógramminu.
Keppnin hefur vaxið jafnt og þétt frá 2004 og í ár munu 26 þjóðir halda undankeppnir í sínu landi og verður Ísland þar á meðal í annað sinn. Sigursveitin í hverju landi fyrir sig fyrir sig hlýtur að launum þátttökurétt í lokakeppninni á Wacken.
Sigurhljómsveitin í undankeppninni er valin af dómnefnd, en hvorki meira né minna en 6 erlendir aðilar, blaðamenn, umboðsmenn og tónleikahaldarar koma til landsins til að skipa hina 10 manna dómefnd, þar á meðal yfirmaður keppninnar frá Þýskalandi.
Sveitirnar sem munu bítast um hnossið í ár eru svo sannarlega með því besta sem landið hefur upp á að bjóða í þungarokkinu:
Gone Postal
Carpe Noctem
Gruesome Glory
Wistaria
Universal Tragedy
Severed Crotch
Atrum
Að auki koma fram tvær gestasveitir: Beneath, sigurvegararnir frá því í fyrra og Momentum, sem eru að koma fram í fyrsta sinn á þessu ári.
Það er því sannkölluð þungarokksveisla hér á ferðinni og tvímælalaust einn af stærstu viðburðunum í þessum geira í ár, enda verður Sódóma færður í sérstakan búning, leigt inn auka lýsingarbúnaður og allt gert til að viðburðurinn verði sem flottastur.
18 ára aldurstakmark.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 13.03.10 - Laugardagur | 20:45 | Wacken Metal Battle 2010 - Undankeppni | Sódóma Reykjavik | Restingmind Concerts | 1.300 kr. |

