- Þú ert hér »
Amadou & Mariam

Tengt efni
Nánari upplýsingar á vefnum
Amadou & Mariam frá Malí
Opnunartónleikar Listahátíðar 2010
Laugardalshöll 12. maí kl. 20:30
"Ótrúlega vel heppnuð blanda af léttu grípandi afrísku poppi og vestrænu."
Árni Matthíasson – Morgunblaðið
Velkomin til Malí! Amadou & Mariam koma með vorið til Reykjavíkur og fylla Laugardalshöllina af fjöri þann 12. maí á opnunartónleikum Listahátíðar í Reykjavík. Parið, sem vakið hefur heimsathygli fyrir einstakan og líflegan tónlistarbræðing sinn, lék nýverið fyrir Obama við afhendingu Nóbelsverðlaunanna í Ósló og hinni virtu Lollapalooza tónlistarhátíð í Chigaco. Þau koma nú hingað til lands með stóra hljómsveit og sannkallaða heimstónlistarstemmningu sem lofuð hefur verið í hástert og samanstendur af rafmangsgíturum, kúbverskum lúðrum, egypskum ney flautum, sýrlenskum fiðlum, indverskum tablas trumbum og margvíslegum ásláttarhljóðfærum frá Malí.
Fáir afrískir tónlistarmenn njóta eins viðamikillar virðingar og hylli líkt og þau Amadou og Mariam, en engin afrísk plata hefur selst jafn vel og meistaraverk þeirra Dimance a Bamako frá árinu 2005. Platan var á dögunum nefnd ein af 100 bestu plötum síðasta áratugar hjá dagblaðinu The Times. Fyrir stuttu var einnig lagið Sabali, af plötunni Welcome to Mali, valið eitt af bestu lögum áratugarins af hinum virta tónlistarmiðli Pitchfork Media.
Ferill hjónanna frá Bamakó spannar yfir þrjá áratugi en þau hafa á síðustu árum unnið með fjölda listamanna og hljómsveita, m.a. Damon Albarn og David Gilmour úr Pink Floyd. Þau voru fengin til að semja þemalag Heimsmeistaramótsins í fótbolta í Þýskalandi árið 2006 og hafa fengið fjölda verðlauna fyrir lagasmíðar sínar og plötur, m.a. Songlines Awards fyrir hljómplötu þeirra, Welcome to Mali (2008) sem vakti verðskuldaða athygli á tónlist þeirra út fyrir ramma heimstónlistarinnar. Í kjölfarið var dúóið fengið af Coldplay til að koma fram á Viva la Vida tónleikaferð hennar um heimsbyggðina en sveitin hefur jafnframt hitað upp fyrir ekki ómerkari spámenn en Scissor Sisters og Blur.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 með upphitunarbandinu Retro Stefson.
Tónleikar Amadou & Mariam eru samstarf Listahátíðar í Reykjavík og Faxaflóa ehf.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 12.05.10 - Miðvikudagur | 20:30 | Amadou og Mariam - Tónleikar | Laugardalshöll | Listahátíð í Reykjavík 2010 | 5.500 kr. / 4.500 kr. |


