Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Dikta heldur stórtónleika á Nasa við Austurvöll laugardagskvöldið 27. mars. Dikta gaf út plötuna Get it Together sl. haust og hafa viðtökurnar verið með eindæmum góðar, platan hefur hlotið einróma lof og seldist upp í tvígang fyrir jólin. Á plötunni eru tvö lög sem þegar höfðu átt gríðarlegum vinsældum að fagna í íslensku útvarpi, lögin Just Getting Started og Let Go, en þriðja smáskífa plötunnar, From Now On sló enn rækilegar í gegn og sat 8 vikur í röð á toppi Lagalistans yfir mest spiluðu lög í íslensku útvarpi. Fjórða smáskífan Thank You hefur síðan fylgt í kjölfarið og hefur setið í toppsætinu síðustu þrjár vikur.

Dikta hefur nú spilað á tvennum tónleikum á Nasa síðustu mánuði þar sem troðið hefur verið út úr dyrum og þurftu því miður margir frá að hverfa. Dikta hefur spilað á fjölmörgum tónleikum um allan heim og hefur hún sýnt og sannað síðustu misserin að Dikta er orðið eitt þéttasta og skemmtilegasta live band landsins og fer enginn ósnortinn af tónleikum þeirra.

Pétur Ben & Mammút, ein efnilegasta hljómsveit landsins munu sjá um upphitun á tónleikunum.

20 ára aldurstakmark.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
27.03.10 - Laugardagur 23:00 Dikta - Tónleikar Nasa Atkid ehf. 1.500 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



World Class
Uppfæra Flash