Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Upplifun í hljóði – Tvöfaldir jazztónleikar í Óperunni

Það er óhætt að lofa ógleymanlegri stund þegar Marilyn Mazur og Sidsel Endresen stíga á stokk ásamt framúrskarandi norrænum jazzistum á tvöföldum tónleikum í tilefni 20 ára afmælis Jazzhátíðar Reykjavíkur og 40 ára afmælis Listahátíðar í Reykjavík. Það sem sameinar þessar frábæru tónlistarkonur er sjálfsprottin tón- og taktsköpun sem verður að melódískum og rytmískum galdri í meðförum þeirra. Marilyn Mazur er gríðarlegur áhrifavaldur í djass- og heimstónlist og lék hún lengi á slagverk með Miles Davis og Wayne Shorter áður en hún fór að einbeita sér að eigin sköpunarferli. Sidsel Endresen hefur um árabil veitt ferskum vindum inn í spunatónlist um allan heim og tilheyrir þeim  hópi listamanna sem skilgreinir og endurskilgreinir tónlistina í sífellu.  Með Marilyn  leika Nils Petter Molvær á trompet og Eivind Aarset á gítar, en saxófónleikarinn Håkon Kornstad stígur á svið með Sidsel.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
14.05.10 - Föstudagur 20:00 Upplifun í hljóði - Jazztónleikar Íslenska óperan Listahátíð í Reykjavík 2010 3.500 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash