Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Maríusöngvar í Kristskirkju - Carmina Kammerkór

Fjöldi tónskálda hefur í gegnum tíðina helgað Maríu mey verk sín og endurreisnin var sannkallað blómaskeið slíkra Maríusöngva.  Kammerkórinn Carmina ásamt einsöngvurum syngur Maríusöngva á tvennum tónleikum í Kristkirkju, meðal annars hið víðfræga Ave Maria eftir Josquin des Prez, sem hefur verið kallað „Mona Lisa endurreisnartónlistarinnar“. Þá syngur kórinn einnig tvö magnþrungin tónverk sem byggja á Harmljóðum Jeremía spámanns, eftir Thomas Tallis og Orlando di Lasso. Stjórnandi er Árni Heimir Ingólfsson.  Fyrsti hljómdiskur Carminu, Melódía, hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2009 fyrir besta disk í flokki sígildrar tónlistar og var valinn einn af bestu diskum ársins 2009 í breska tímaritinu Gramophone.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
15.05.10 - Laugardagur 16:00 Maríusöngvar - Carmina kammerkór Kristskirkja við Landakot Listahátíð í Reykjavík 2010 2.500 kr.
16.05.10 - Sunnudagur 16:00 Maríusöngvar - Carmina kammerkór Kristskirkja við Landakot Listahátíð í Reykjavík 2010 2.500 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



World Class
Uppfæra Flash