- Þú ert hér »
Bedroom Community

Bedroom Community – The Whale Watching tour
Valgeir Sigurðsson, Nico Muhly, Ben Frost og Sam Amidon eru stofnendur Bedroom Community, tónlistarsamstarfs sem gefið hefur af sér ógleymanleg augnablik á tónleikum og hverja snilldarplötuna eftir aðra. Nú leggja þeir Evrópu að fótum sér með The Whale Watching Tour, sem lýkur með tónleikum á Listahátíð í Reykjavík. Með þeim á ferðalaginu eru Nadia Sirota viola, Una Sveinbjarnardóttir fiðla, Borgar Magnason kontrabassi og Helgi Hrafn Jónsson básúna og söngur. Daníel Bjarnason, tónskáld og stjórnandi, opnar tónleikana með eigin verki fyrir litla hljómsveit.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 16.05.10 - Sunnudagur | 20:00 | Bedroom Community - The whale watching tour | Þjóðleikhúsið - Stóra sviðið | Listahátíð í Reykjavík 2010 | 3.500 kr. |


