- Þú ert hér »
Kimmo Pohjonen

Kimmo Pohjonen
Að hlusta á Kimmo Pohjonen er stórbrotin upplifun sem umbyltir öllum hugmyndum um hvernig harmónikka hljómar og hvernig tónlist skuli leikin á hana. Kimmo Pohjonen er framúrstefnulegur finnskur tónlistarmaður og harmónikkulistamaður. Hann kemur fram á einum tónleikum í NASA og bruggar þar magnaðan seið með sömplum, ljósum og slagsmálum við hljóðfærið sem víkka út sjóndeildarhring allra viðstaddra. Hjá Kimmo er húmorinn aldei langt undan og hann hefur samið, tekið upp tónlist og leikið með ólíkum tónlistarmönnum víða um heim, strengjasveitum, butoh-dönsurum og áströlskum landbúnaðartækjum svo eitthvað sé nefnt og samið tónlist fyrir kvikmyndir, dansverk og leiksýningar. Fyrir nokkrum vikum lék hann með Kronos kvartettinum í Carnegie Hall og hlaut rífandi móttökur áhorfenda og gagnrýnenda.
„Ótrúleg, hrífandi og súrrealísk tónlistar- og leikhúsupplifun; fullkomlega sérviskuleg, frumleg og ósvífin listræn snilld í mörgum víddum. Enginn flutningur hefur hrifið mig jafn mikið á undanförnum árum.“ (jazzhouse.org)
"Finland's answer to Bjork... Pohjonen is nothing less than jaw dropping. Utterly brilliant." (New Internationalist)
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 21.05.10 - Föstudagur | 21:00 | Kimmo Pohjonen - Standandi tónleikar / Standing Concert | Nasa | Listahátíð í Reykjavík 2010 | 2.900 kr. |

