Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Lumen – leikur að ljósi

Þýsk/íslenski kammerhópurinn Adapter sérhæfir sig í flutningi samtímatónlistar og vinnur náið með ungum tónskáldum, myndlistarmönnum, dönsurum og rithöfundum. Á Listahátíð kannar hópurinn sjónræna eiginleika tónlistarinnar og hljóðræna eiginleika ljóssins ásamt myndlistarmanninum Halldóri Úlfarsyni. Þau munu frumflytja á Íslandi splunkuný tónverk eftir tvö finnsk tónskáld, Antti Auvinen og Sami Klemola, sem samin voru sérstaklega fyrir hópinn. Þar á meðal hljóðfæra eru ljósaperur, lazergeislar og eldur ásamt „ljósahljóðfærum“ Halldórs. Á efnisskránni eru einnig meistaraverk nútímatónbókmenntanna sem flutt verða í samspili ljóss og skugga: Lumen eftir Franco Donatoni, eftir Tristan Murail og A Twilight Song eftir Matthias Pintscher sem og nýtt verk eftir þýska tónskáldið Sara Nemtsov. Adapter skipa: Kristjana Helgadóttir, flauta; Ingólfur Vilhjálmsson, bassi og klarinetta; Gunnhildur Einarsdóttir, harpa; Marc Tritschler, píanó og Matthias Engler, slagverk.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
23.05.10 - Sunnudagur 21:00 Lumen - Adapter Listasafn Íslands Listahátíð í Reykjavík 2010 2.500 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



World Class
Brim