Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Á mörkunum?
Sönglög í nýjum útfærslum eftir Björk og fleiri tónskáld "á mörkunum".

Ásgerður Júníusdóttir messósópran og Jónas Sen píanónleikari og útsetjari flytja sönglög sem mörgum eru kunn og kær eftir Björk Guðmundsdóttur, Gunnar Reyni Sveinsson og Magnús Blöndal Jóhannsson í nýjum útsetningum og útfærslum.  Þetta eru tónleikar þar sem stefnt er saman þremur ólíkum tónskáldum sem eiga það sameiginlegt að hafa samið tónlist sem er á mörkum klassískrar tónlistar og annarra tónlistarstefna og heyra má áhrif frá jazz, kvikmyndatónlist, dægurtónlist og popptónlist.   Á tónleikunum mun Jónas leika á orgel, píanó, selestu, sembal og rafmagnshljómborð. Hann lék á þessi hljóðfæri og fleiri á yfir 70 tónleikum í heimsreisu Bjarkar á árunum 2007 – 2008 og hefur hann nú útsett yfir fjörutíu lög hennar fyrir rödd og ýmis hljómborðshljóðfæri.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
26.05.10 - Miðvikudagur 20:00 Á mörkunum? - Íslenska óperan Listahátíð í Reykjavík 2010 2.900 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



World Class
Brim