- Þú ert hér »
Orquesta Chekara Flamenca

Orquesta Chekara Flamenca - Flamencotónlist og dans frá Spáni og Marokkó
Mikilfenglegt ferðalag um tónlistarhefð Suður-Spánar og Marokkó. Einstakt tækifæri til að upplifa beint í æð þessa samofnu tónlistarhefð landanna tveggja beggja vegna Gíbraltarsunds sem deila sögu um dýrð, drottnun, stríð og frið. Hljómsveitin færir áhorfendum á Listahátið dagskrá sem bræðir saman flamencodans við al-ala tónlist sem leikin var í Andalúsíu á blómlegum tímum máraríkis. Arabísk-andalúsíska hljómsveitin Orchesta Chekara Flamenca de Tetuán var stofnuð fyrir meira en 50 árum af hinum merka Abdessakak Chekara og er hún nú undir stjórn marókkóska fiðluleikararns og söngvararns Jallal Chekara. Hópurinn sló sló rækilega í gegn á WOMEX heimstónlistarhátíðinni í Kaupmannahöfn síðastliðið haust og nýverið var frumsýnd um þau heimildarmynd á Flamencohátíðinni í New York. Í tengslum við komu þeirra til landsins verður efnt til námskeiðs um flamenco hefðina í samvinnu við Endurmenntun Háskóla Íslands.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 30.05.10 - Sunnudagur | 20:00 | Orquesta Chekara Flamenca - | Íslenska óperan | Listahátíð í Reykjavík 2010 | 3.500 kr. |


