Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Njúton og The Formalist Quartet
Vortex Temporum

Íslenski tónlistarhópurinn Njúton og bandaríski strengjakvartettinn The Formalist Quartet leiða saman hesta sína og frumflytja á Íslandi eitt af stórvirkjum tónlistarsögu 20. aldar; Vortex Temporum eftir franska tónskáldið Gérard Grisey. Tónlist Grisey hefur lítið hljómað á Íslandi en hann er eitt af höfuðskáldum svokallaðrar spektraltónlistar. Á tónleikunum verður jafnframt frumflutt nýtt verk eftir Atla Ingólfsson, innblásið af einum af hans lærifeðrum, einmitt Gérard Grisey. Einnig verða tveir strengjakvartettar eftir Úlfar Inga Haraldsson og Nicholas Deyoe fluttir á tónleikunum. Hljóðfæraleikarar á tónleikum Listahátíðar eru: Berglind María Tómasdóttir flauta, Brian Walsh klarinett, Mark Menzies fiðla/víóla/stjórnandi, Andrew McIntosh fiðla/víóla, Andrew Tholl fiðla, Ashley Walters selló, og Tinna Þorsteinsdóttir píanó. Strengjaleikararnir eru allir meðlimir í strengjakvartettnum The Formalist Quartet sem hefur notið mikillar velgengni vestanhafs og komið fram víða um Bandaríkin, meðal annars á tónlistarhátíðum, í tónlistarhúsi Los Angeles; Walt Disney Concert Hall og víðar.

Í tilefni af lokadögum Listahátíðar býðst miðinn á tónleika Njúton and The Formalist Quartet á 1.900 kr. Fullt verð er 2.900 kr og reiknast afslátturinn þegar gengið er frá miðakaupum (afsláttur kemur sjálfkrafa í skrefi #3).

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
04.06.10 - Föstudagur 20:00 Vortex Temporum - Íslenska óperan Listahátíð í Reykjavík 2010 2.900 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash