- Þú ert hér »
Bræðslan 2010

Tengt efni
Nánari upplýsingar á vefnum
Bræðslan 2010
Dikta - Fanfarlo
KK & Ellen - 200.000 Naglbítar
Of Monsters and Men
Tónlistarhátíðin Bræðslan á Borgarfirði Eystri fer fram í sjötta skipti í sumar helgina 23. - 25. júlí.
Bræðslan hefur styrkt sig í sessi sem einn af áhugaverðari stoppistöðum Íslands yfir sumarmánuðina. Í gegnum tíðina hafa komið fram á Bræðslunni Emilíana Torrini, Damien Rice, Belle & Sebastian, Magni, Lay Low, Þursaflokkurinn, Megas og Senuþjófarnir, Páll Óskar og Monika og Eivör Pálsdóttir svo fáein séu nefnd.
Að jafnaði hafa rúmlega 1.000 manns sótt Borgarfjörð Eystri heim Bræðsluhelgina sem verður að teljast ágætis viðbót við íbúafjöldann sem telur um 100 manns. Tónlistarhátíðin Bræðslan dregur nafn sitt af samnefndri síldarbræðslu þarsem tónleikar hátíðarinnar fara fram að laugardagskveldi.
Í ár koma fram á hátíðinni Dikta, Fanfarlo, KK & Ellen, 200.000 Naglbítar og sigurvegarar Músíktilrauna Of Monsters and Men.
Verð aðgöngumiða í forsölu er 5.500.- kr. og eru 800 aðgöngumiðar í boði. Verð aðgöngumiða við hlera verður 6.500.- kr. (þeas ef ekki verður orðið uppselt í forsölu).
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 24.07.10 - Laugardagur | 19:30 | Bræðslan 2010 - Tónleikar | Bræðslan (Borgarfjörður Eystri) | Magnaðir ehf | 5.500 kr. |


