Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

21. - 23. júlí - Karlakór St. Basil dómkirkjunnar
Karlakór St. Basil-dómkirkjunnar í Moskvu hefur getið sér gott orð víða um heim. Hann er skipaður atvinnusöngvurum sem allir hafa hlotið æðstu framhaldsmenntun í söng. Kórinn heldur á lofti hinni áhrifamiklu rússnesku karlakórahefð með ógleymanlegum söng sínum. Hann er mörgum að góðu kunnur síðan hann kom fram á Listahátíð 2004 við frábærar undirtektir áheyrenda.

Kórinn var bannaður af kommúnistastjórninni frá 1930 fram að 1991 þegar hann kom fram aftur 14. október undir stjórn Sergei Krivobokov. Frá þeim degi hefur kórinn sungið regulega í hinni fögru dómkirkju St. Basil í Moskvu auk þess sem hann tekur þátt í tónlistarhátíðum víða um lönd.

Kórinn hefur fengið þá umsögn gagnrýnanda í aðalblaði Moskvu að flutningur hans sé svo magnaður að hverjum manni hljóti að vökna um augu við að hlýða á söng hans. Kórinn flytur m.a. rússnesk þjóðlög, miðaldatónlist og lög eftir rússnesk tónskáld

24. júlí kl 15.00 - Þóra Einarsdóttir
Þóra Einarsdóttir stundaði söngnám við Söngskólann í Reykjavík hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur og við Guildhall School of Music and Drama hjá Prof. Lauru Sarti. Þóra þreytti frumraun sína að námi loknu við Glyndebourne Festival Opera árið 1995. Hún steig þó fyrst á svið Íslensku óperunnar aðeins 18 ára gömul í litlum hlutverkum í Rigoletto og í Töfraflautunni.

24. júlí kl 20.00 - Reykholtstríóið
Auður Hafsteinsdóttir fiðla, Bryndís Halla Gylfadóttir selló, Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanó
Hafa starfað saman síðan þær voru við nám í New England Conservatory of Music í Boston þaðan sem þær luku allar námi sem einleikarar. Þær hafa tekið virkan þátt í íslensku tónlistarlífi síðan og koma fram á fjölda tónleika hérlendis og erlendis bæði sem einleikarar og flytjendur kammertónlistar o.fl. Verkefnaval þeirra er mjög fjölbreytt, allt frá Mozart til Astor Piazzolla og þær koma fram ýmist sem sólistar, dúó eða tríó. Þær hafa allar hlotið fjölda viðukenninga fyrir leik sinn.

25. júlí kl 16.00 - Lokatónleikar Reykholtshátíðar
Fram koma Reykholtstríóið, Ástríður Alda Sigurðardóttir, píanóleikari, Pálína Árnadóttir fiðluleikari, Þórunn Ósk Marinósdóttir víóluleikari og Þóra Einarsdóttir sópran. Flutt verða verk m.a. eftir Fauré og hinn þekkti píanókvintett

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
21.07.10 - Miðvikudagur 20:00 Reykholtshátíð 2010 - St. Basil karlakórinn frá Moskvu Reykholtskirkja, Borgarfirði Reykholtshátíð 3.500 kr.
22.07.10 - Fimmtudagur 20:00 Reykholtshátíð 2010 - St. Basil karlakórinn frá Moskvu Reykholtskirkja, Borgarfirði Reykholtshátíð 3.500 kr.
23.07.10 - Föstudagur 20:00 Reykholtshátíð 2010 - St. Basil karlakórinn frá Moskvu Reykholtskirkja, Borgarfirði Reykholtshátíð 3.500 kr.
24.07.10 - Laugardagur 15:00 Reykholtshátíð 2010 - Þóra Einarsdóttir Reykholtskirkja, Borgarfirði Reykholtshátíð 2.500 kr.
24.07.10 - Laugardagur 20:00 Reykholtshátíð 2010 - Reykholtstríóið Reykholtskirkja, Borgarfirði Reykholtshátíð 2.500 kr.
25.07.10 - Sunnudagur 16:00 Reykholtshátíð 2010 - Lokatónleikar Reykholtskirkja, Borgarfirði Reykholtshátíð 2.500 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



Macland.is
Uppfæra Flash