- Þú ert hér »
Gul tónleikaröð

Gula röðin er góður kostur fyrir þá sem vilja heyra klassíska tónlist af ýmsum toga. Hér eru vinsæl hljómsveitarverk af litríkara taginu í forgrunni, meðal annars ódauðleg ballettmúsík Prokofíevs við Rómeó og Júlíu og litrík ævintýratónlist við Sheherazade eftir Rimskíj-Korsakoff, sem byggir á ævintýrum úr Þúsund og einni nótt.
Þá verður flutt tónaljóð Richards Strauss um ofurmennið Zaraþústra, sem flestir þekkja úr kvikmyndinni 2001: A Space Odyssey.
Meðal einleikara í Gulu röðinni eru fjórir íslenskir tónlistarmenn í fremstu röð, þeirra á meðal hinn ástsæli Víkingur Heiðar sem leikur á upphafstónleikum starfsársins.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 10.09.10 - Föstudagur | 19:30 | Gul tónleikaröð - Upphafstónleikar | Háskólabíó | Sinfóníuhljómsveit Íslands 2010 - 2011 | 3.900 kr. / 3.400 kr. |
| 28.10.10 - Fimmtudagur | 19:30 | Gul tónleikaröð - Þúsund og ein nótt | Háskólabíó | Sinfóníuhljómsveit Íslands 2010 - 2011 | 3.900 kr. / 3.400 kr. |
| 25.11.10 - Fimmtudagur | 19:30 | Gul tónleikaröð - Rómeó og Júlía | Háskólabíó | Sinfóníuhljómsveit Íslands 2010 - 2011 | 3.900 kr. / 3.400 kr. |
| 10.02.11 - Fimmtudagur | 19:30 | Gul tónleikaröð - Svo mælti Zaraþústra | Háskólabíó | Sinfóníuhljómsveit Íslands 2010 - 2011 | 3.900 kr. / 3.400 kr. |
| 24.02.11 - Fimmtudagur | 19:30 | Gul tónleikaröð - Rómantíska sinfónían | Háskólabíó | Sinfóníuhljómsveit Íslands 2010 - 2011 | 3.900 kr. / 3.400 kr. |
| 17.03.11 - Fimmtudagur | 19:30 | Gul tónleikaröð - Postnikova leikur Prokofíev | Háskólabíó | Sinfóníuhljómsveit Íslands 2010 - 2011 | 3.900 kr. / 3.400 kr. |
| 14.04.11 - Fimmtudagur | 19:30 | Gul tónleikaröð - Mozart og Brahms | Háskólabíó | Sinfóníuhljómsveit Íslands 2010 - 2011 | 3.900 kr. / 3.400 kr. |


