Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Árum saman hafa þessar tvær af vinsælustu "Norðlensku" hljómsveitum landsins, leitað leiða til að halda sameiginlega tónleika í höfuðstað Vestmannaeyjaklasans en þrátt fyrir ráðleggingar frá helstu stjörnuspekingum, fjármálaráðgjöfum og borðtennislandsliðinu hefur ekki tekist að koma saman trúverðugri dagsetningu á slikan konsert.

Þangað til núna. Skyndilega skýst upp á yfirborðið miðvikudagurinn 28. júlí og einhvern veginn bara smellpassar, svona mátulega rétt fyrir Verslunarmannahelgina en um hana ku gjarnan vera fjör í Eyjum. Staðurinn er að sjálfsögðu Höllin, tímasetningin 21.00 og miðaverð í forsölu 2.500 kr. þannig að það margborgar sig að vera tímanlega í því að tryggja sér miða þar sem miðaverð við dyrnar er 3.500 og þar með er verið að eyða alltof miklum peningi í vitleysu.

Báðar hljómsveitirnar hyggjast spila alls konar lög segja brandara sem hafnað hefur verið af ritstjórn Séð og heyrt...

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
28.07.10 - Miðvikudagur 21:00 Hvanndalsbræður og Ljótu hálfvitarnir - Í Eyjum Höllin (Vestmannaeyjum) Span hljóðleiga 2.500 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



World Class
Uppfæra Flash