- Þú ert hér »
Jazzhátíð Reykjavíkur

Jazz í 15 daga. 80 viðburðir!
Jazzhátíð Reykjavíkur verður sett í 21. sinn í Þjóðmenningarhúsinu 14. ágúst kl 17.00
Gullaldarsvíng á Grand hótel!
Sunnudagur 22. ágúst kl 20.00 Grand hótel, Sigtún
Sveiflusextettinn undir stjórn Hauks Gröndal býður upp á gullaldarjazz með frábærum söngvurum. Söngvarinn Martin Roy Wade tekur lagið með sextettinum og Kristjana Stefánsdóttir syngur nokkur lög og dúetta með Wade. Haukur Gröndal saxófónn, Snorri Sigurðarson trompet, Ásgeir Ásgeirsson gítar, Vignir Stefánsson píanó, Þorgrímur Jónsson kontrabassi, Erik Qvick trommur.
ADHD og básúnusnillingurinn Nils Wogram ásamt Nostalgia
Föstudagur 27. ágúst kl 20.00, Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhúsi
ADHD hlaut íslensku tónlistarverðlaunin fyrir sína fyrstu plötu sem tekin var upp á Jazzhátíð 2009. Nú kynna þeir nýtt efni í bland við þrautreynda verðlaunamúsík. Davíð Þór Jónsson hljómborð, Óskar Guðjónsson saxófónn, Ómar Guðjónsson gítar og Magnús Trygvason Eliassen trommur. Nils Wogram er almennt talin ein helsta vonarstjarna Þýskalands í jazzmúsík. Snilli hans á básúnuna er óumdeild og hann býr yfir miklum fjölbreytileika bæði sem hljóðfæraleikari og tónsmiður. Eitt af fjölmörgum verkefnum hans er Nostalgia tríóið sem auk hans er skipað Florian Ross á Hammond orgel og Dejan Terzic á trommur.
Einn þrefaldur!
Föstudagur 27. ágúst kl 22.00 á Sódómu Reykjavík
HORN. Jóel Pálsson leiðir nýja hljómsveit í gegnum splunkunýja tónlist. PERICO SAMBEAT. Spænski sópran og altósaxófónleikarinn Perico Sambeat er meðal merkustu jazzlistamanna Spánverja um þessar mundir. La Fanfare du BelgistaN Síðasti sjéns að ná þessum belgísku fjörkálfum áður en þeir yfirgefa Ísland. Ótrúlega skemmtilegt band!
Hammond í Hafnarhúsi.
Laugardagur 28. ágúst kl 22.00, Listasafn Reykjavikur, Hafnarhúsi
Fjórir Hammondleikarar spreyta sig á þessum kadilakk hljómborðanna. Florian Ross, Kjeld Lauritsen, Agnar Mar Magnusson og Þórir Baldursson. Slitið verður út amk þremur trommurum og hóp blásara.
Jagúar.
Laugardagur 28. ágúst kl 24.00, Venue
Þessi hljómsveit kom út úr fönkskápnum 1998 og hefur brýnt þessa mikilvægu tónlistartegund fyrir íslendingum síðan.
Jon Hassell.
Sunnudagur 29. ágúst kl 21.00, Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhúsi
vort sem verk Hassells eru flokkuð sem heims- minimal- jazz- eða ambíent-tónlist þá er ljóst að áhrif hann á tónlist og tónlistarmenn síðustu ára eru umtalsverð. Einnig hefur hann vakið mikla athygli fyrir vangaveltur sínar um tónlist en í bígerð er bók um þessi efni sem hann vinnur í samvinnu við Brian Eno. Fyrr um daginn talar Hassell um tónlistina. (kl 17 i Hafnarhúsi-ókeypis fyrir handhafa miða á tónleikana) Hér spilar hann ásamt norska raftónlsitarmanninum Jan Bang. Hilmar Jensson opnar tónleikana með einleiksdagskrá.
Erlendir listamenn/Visiting artists: Django Bates (UK) Autumn Fires and Green Shoots ( solo piano), Nils Wogram's Nostalgia Trio (GER), Don Randi Quest (USA), Achim Kauffman (GE), Jean Marie Machado (FR), Django Bates (UK) Beloved Bird Trio, Kjeld Lauritsen (DK), Jan Bang (NO), Jim Black (USA), BelgistaN (BE), Maria Babtist (GE), Martin Roy Wade (USA), IKI (DK), Sören Dahl Jeppesen (DK), Wallabees (IS/NO), Uwaga Wagga (IS/BO/DK), Hdden (NE/IS), Jon Hassell (USA).
Innlendir listamenn/Local artists: Agnar Már Magnússon, Ástvaldur Traustason, Haukur Gröndal, Guitar Islancio, Jóel Pálsson, Jagúar, K Tríó, Reginfirra, Stórsveit Samma, Stórsveit Reykjavíkur, Uwagga Wagga, Moses Hightower, B3, Asa Tríóið, ADHD, Sigurður Flosason, Sunna Gunnlaugsdóttir, Kristjana Stefánsdóttir, Ellen Kristjánsdóttir, Óskar Guðjónsson og margir fleiri.
Dagskrána má skoða í smáatriðum á www.reykjavikjazz.is
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 22.08.10 - Sunnudagur | 20:00 | Jazzhátíð Reykjavíkur 2010 - Gullarldarsvíng á Grand Hótel | Grand Hótel | Jazzhátíð Reykjavíkur | 2.000 kr. |
| 23.08.10 - Mánudagur | 20:00 | Jazzhátíð Reykjavíkur 2010 - JAZZPASSI | Reykjavík | Jazzhátíð Reykjavíkur | 8.000 kr. |
| 27.08.10 - Föstudagur | 20:00 | Jazzhátíð Reykjavíkur 2010 - ADHD og Nils Wogram | Listasafn Reykjavíkur | Jazzhátíð Reykjavíkur | 2.500 kr. |
| 27.08.10 - Föstudagur | 22:00 | Jazzhátíð Reykjavíkur 2010 - Einn þrefaldur | Sódóma Reykjavik | Jazzhátíð Reykjavíkur | 2.000 kr. |
| 28.08.10 - Laugardagur | 22:00 | Jazzhátíð Reykjavíkur 2010 - Hammond í Hafnarhúsi | Listasafn Reykjavíkur | Jazzhátíð Reykjavíkur | 2.000 kr. |
| 28.08.10 - Laugardagur | 23:59 | Jazzhátíð Reykjavíkur 2010 - Jagúar | Venue | Jazzhátíð Reykjavíkur | 2.000 kr. |
| 29.08.10 - Sunnudagur | 21:00 | Jazzhátíð Reykjavíkur 2010 - Jon Hassell | Listasafn Reykjavíkur | Jazzhátíð Reykjavíkur | 2.500 kr. |


